AÐ TAKAST Á VIÐ HÆKKANDI VERÐLAG
Sættu þig við veruleikann
Þegar verðlag hækkar smátt og smátt tökum við kannski varla eftir því, sérstaklega ef launin halda í við hækkanirnar. En þegar verðlag rýkur upp og launin standa í stað gætum við orðið kvíðin og áhyggjufull, sérstaklega ef við höfum fyrir fjölskyldu að sjá.
Við getum ekki stöðvað hækkandi verðlag. En við getum gert sjálfum okkur gagn með því að sætta okkur við veruleikann.
HVERS VEGNA ER ÞAÐ MIKILVÆGT?
Fólk sem hefur raunhæfa sýn á hækkandi verðlag á oft auðveldara með að …
halda rónni. Þegar við gerum það hugsum við skýrar og tökum betri ákvarðanir.
forðast óskynsamlegar venjur. Það væri til dæmis óskynsamlegt að borga ekki reikninga eða eyða peningum í óþarfa.
stilla sig um að rífast við fjölskylduna um peninga.
koma auga á leiðir til að bjarga sér, til dæmis með því að forgangsraða upp á nýtt og breyta neysluvenjum.
HVAÐ GETUR ÞÚ GERT?
Vertu fús til að aðlagast breytingum. Þegar það er mikil verðbólga er skynsamlegt að draga úr útgjöldum ef það er hægt. Sumir reyna að halda uppi lífsstíl sem þeir hafa ekki efni á. Það er eins og að reyna að synda á móti straumnum í straumharðri á. Þeir slíta sig bara út á því. Ef þú ert með fjölskyldu er þér auðvitað mikið í mun að sjá fyrir henni. En hafðu þetta í huga: Fjölskylda þín þarf meira á kærleika þínum, tíma og athygli að halda en nokkru öðru.
Að reyna að viðhalda allt of dýrum lífsstíl er eins og að reyna að synda á móti straumnum í straumharðri á.