Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • CO-pgm23 bls. 7-8
  • Upplýsingar fyrir mótsgesti

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Upplýsingar fyrir mótsgesti
  • Dagskrá fyrir umdæmismótið 2023
  • Svipað efni
  • Upplýsingar fyrir mótsgesti
    Dagskrá fyrir umdæmismótið 2024
  • Upplýsingar fyrir mótsgesti
    Dagskrá fyrir umdæmismótið 2020
  • Uppslýsingar fyrir mótsgesti
    Dagskrá fyrir umdæmismótið 2025
  • Upplýsingar fyrir mótsgesti
    Dagskrá fyrir umdæmismótið 2019
Sjá meira
Dagskrá fyrir umdæmismótið 2023
CO-pgm23 bls. 7-8

Upplýsingar fyrir mótsgesti

UMSJÓN Þeir sem hafa umsjón í sal eru mótsgestum til aðstoðar. Fylgdu leiðbeiningum þeirra varðandi bílastæði, sæti og fleira.

SKÍRN Þeir sem ætla að láta skírast á mótinu eru beðnir um að fá sér sæti í fremstu sætaröð fyrir framan sviðið áður en skírnarræðan hefst fyrir hádegi á laugardag. Þeir eru beðnir um að hafa með sér handklæði og sundföt við hæfi.

FRJÁLS FRAMLÖG Talsverðum fjármunum hefur verið varið til þess að hafa hentug sæti, hljóðkerfi, myndbúnað og fleira sem gerir dvölina á mótinu ánægjulega og hjálpar okkur að styrkja sambandið við Jehóva. Frjáls framlög ykkar eru notuð til að standa undir þessum kostnaði og styðja alþjóðastarfið. Á mótsstaðnum má finna vel merkta bauka fyrir frjáls framlög. Það er líka hægt að gefa frjáls framlög á netinu með því að fara á donate.jw.org. Öll framlög eru mikils metin og stjórnandi ráð þakkar rausnarlegan stuðning við starfsemi Guðsríkis.

SKYNDIHJÁLP Hafa ber í huga að þessi deild sinnir aðeins neyðartilfellum.

TAPAÐ FUNDIÐ Fara ætti með alla óskilamuni í deildina sem er merkt ‚Tapað fundið‘. Ef þú týnir einhverju skaltu fara þangað. Ef börn verða viðskila við foreldra sína ætti að fara með þau í þessa deild. En til að forðast óþarfa álag er fólk vinsamlega beðið um að gæta barna sinna og hafa þau hjá sér.

SÆTI Sýnum öðrum tillitsemi. Munum að það má aðeins taka frá sæti fyrir nána ættingja, heimilisfólk og biblíunemendur okkar og þá sem ferðast með okkur til til mótsstaðarins. Geymum ekki dót í sætum sem eru ekki frátekin.

SJÁLFBOÐASTARF Hafðu samband við sjálfboða- og upplýsingadeildina ef þig langar til að taka þátt í sjálfboðastarfi á mótinu.

SÉRSTAKUR FUNDUR

Bræður og systur í skólastofu hlusta vandlega og skrifa hjá sér minnispunkta.

Skóli fyrir boðbera Guðsríkis

Öllum sem eru í aðstöðu til að auka þjónustuna við Jehóva er boðið að koma á fund eftir hádegi á sunnudag fyrir þá sem vilja sækja um að komast í skólann fyrir boðbera Guðsríkis. Nánari upplýsingar um stað og stund verða tilkynntar.

Skipulagt af stjórnandi ráði Votta Jehóva

© 2023 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania

    Íslensk rit (1985-2025)
    Útskrá
    Innskrá
    • íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2025 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila