Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • lmd kafli 6
  • Hugrekki

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Hugrekki
  • Elskum fólk og gerum það að lærisveinum
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • Hvernig fór Jesús að?
  • Hvað lærum við af Jesú?
  • Líkjum eftir Jesú
  • Líktu eftir Jesú og prédikaðu með djörfung
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2009
  • Prédikar þú með djörfung?
    Ríkisþjónusta okkar – 2000
  • ,Tölum orð Guðs af djörfung‘
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2010
  • Höldum áfram að tala orð Guðs af djörfung
    Ríkisþjónusta okkar – 2005
Sjá meira
Elskum fólk og gerum það að lærisveinum
lmd kafli 6

AÐ HEFJA SAMRÆÐUR

Jesús hvetur Sakkeus til að koma niður úr trénu, mörgum til undrunar.

Lúk. 19:1–7

KAFLI 6

Hugrekki

Meginregla: ‚Við tókum í okkur kjark með hjálp Guðs til að flytja ykkur fagnaðarboðskap hans.‘ – 1. Þess. 2:2.

Hvernig fór Jesús að?

Jesús hvetur Sakkeus til að koma niður úr trénu, mörgum til undrunar.

MYNDBAND: Jesús boðar Sakkeusi trúna

1. Horfðu á MYNDBANDIÐ eða lestu Lúkas 19:1–7. Hugleiddu síðan eftirfarandi spurningar:

  1. Hvers vegna gætu sumir hafa forðast Sakkeus?

  2. Hvað knúði Jesú til að boða honum fagnaðarboðskapinn þrátt fyrir það?

Hvað lærum við af Jesú?

2. Við þurfum að vera hugrökk til að boða fagnaðarboðskapinn án manngreinarálits.

Líkjum eftir Jesú

3. Reiðum okkur á Jehóva. Andi Guðs gaf Jesú kraft til að flytja boðskapinn og hann getur gert það sama fyrir þig. (Matt. 10:19, 20; Lúk. 4:18) Biddu Jehóva um kjark til að tala við þá sem þú gætir verið smeykur við. – Post. 4:29.

4. Dæmum fólk ekki fyrir fram. Við gætum hikað við að nálgast suma vegna ytra útlits, þjóðfélagsstöðu eða efnahags, lífernis eða trúarskoðana. En mundu þetta:

  1. Jehóva og Jesús geta lesið hjörtun en ekki við.

  2. Miskunn Jehóva nær til allra.

5. Finnum jafnvægið milli hugrekkis annars vegar og háttvísi og varkárni hins vegar. (Matt. 10:16) Forðastu deilur. Ljúktu samtalinu kurteislega ef þér finnst viðmælandinn ómóttækilegur gagnvart fagnaðarboðskapnum eða ef þú óttast um öryggi þitt. – Orðskv. 17:14.

SJÁ EINNIG

Post. 4:31; Ef. 6:19, 20; 2. Tím. 1:7

    Íslensk rit (1985-2025)
    Útskrá
    Innskrá
    • íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2025 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila