Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • lmd kafli 8
  • Þolinmæði

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Þolinmæði
  • Elskum fólk og gerum það að lærisveinum
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • Hvernig fór Jesús að?
  • Hvað lærum við af Jesú?
  • Líkjum eftir Jesú
  • Höldum áfram að sýna þolinmæði
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2023
  • Tökum framförum í að boða trúna – notum myndskeið við kennsluna
    Líf okkar og boðun - vinnubók fyrir samkomur – 2016
  • Fórn Jesú getur gagnast þér
    Fleiri viðfangsefni
  • Áhugi á öðrum
    Elskum fólk og gerum það að lærisveinum
Sjá meira
Elskum fólk og gerum það að lærisveinum
lmd kafli 8

EFTIRFYLGNI

Jesús birtist bróður sínum á smíðaverkstæði. Jakob undrast að sjá hann.

Jóh. 7:3–5; 1. Kor. 15:3, 4, 7

KAFLI 8

Þolinmæði

Meginregla: „Kærleikurinn er þolinmóður.“ – 1. Kor. 13:4.

Hvernig fór Jesús að?

Jesús birtist bróður sínum á smíðaverkstæði. Jakob undrast að sjá hann.

MYNDBAND: Jesús er þolinmóður við bróður sinn

1. Horfðu á MYNDBANDIÐ eða lestu Jóhannes 7:3–5 og 1. Korintubréf 15:3, 4, 7. Hugleiddu síðan eftirfarandi spurningar:

  1. Hvernig brugðust bræður Jesú við boðskapnum til að byrja með?

  2. Hvað sýnir að Jesús gafst ekki upp á Jakobi bróður sínum?

Hvað lærum við af Jesú?

2. Við þurfum að vera þolinmóð þar sem fólk þarf mislangan tíma til að átta sig á fagnaðarboðskapnum.

Líkjum eftir Jesú

3. Reynum aðra nálgun. Ekki þrýsta á fólk þó að það samþykki ekki strax biblíunámskeið. Þegar hentugur tími gefst gætirðu notað myndbönd eða greinar til að sýna viðkomanda hvernig biblíunámskeið fer fram og hvernig hann gæti haft gagn af því.

4. Forðumst samanburð. Engir tveir eru eins. Ef einhver í fjölskyldunni eða einstaklingur sem þú heimsækir reglulega hikar við að þiggja biblíunámskeið, eða er ósammála einhverju sem Biblían kennir, skaltu velta fyrir þér hvers vegna svo sé. Er hann tengdur ákveðnum trúarskoðunum tilfinningalegum böndum? Finnur hann fyrir þrýstingi frá ættingjum eða nágrönnum? Gefðu honum tíma til að hugsa um það sem þú hefur sagt og koma auga á gildi þess sem Biblían segir.

5. Biðjum fyrir hinum áhugasama. Biddu Jehóva um hjálp til að vera jákvæður og nærgætinn. Biddu um dómgreind til að vita hvenær tímabært er að hætta að heimsækja einstakling sem sýnir lítinn áhuga. – 1. Kor. 9:26.

SJÁ EINNIG

Mark. 4:26–28; 1. Kor. 3:5–9; 2. Pét. 3:9

    Íslensk rit (1985-2025)
    Útskrá
    Innskrá
    • íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2025 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila