Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • wp17 Nr. 1 bls. 16
  • Hverju svarar Biblían?

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Hverju svarar Biblían?
  • Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (almenn útgáfa) – 2017
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • Veldur Guð þjáningum?
  • Taka þjáningar einhvern tíma enda?
  • Hvað segir Biblían um þjáningar?
    Vaknið! – 2015
  • Af hverju leyfir Guð þjáningar?
    Hvað kennir Biblían?
  • Hvers vegna er svona mikið um þjáningar ef skaparanum er annt um okkur?
    Er til skapari sem er annt um okkur?
  • Hvað finnst Guði um þjáningar þínar?
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (almenn útgáfa) – 2018
Sjá meira
Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (almenn útgáfa) – 2017
wp17 Nr. 1 bls. 16
Stríð geisar og kona heldur utan um ungt barn sitt.

Heimurinn er fullur af þjáningum. Stendur Guð á bak við þær?

Hverju svarar Biblían?

Veldur Guð þjáningum?

Hvað myndir þú segja?

  • Já.

  • Nei.

  • Kannski.

Hvað segir Biblían?

„Fjarri fer því að Guð breyti ranglega og Hinn almáttki aðhafist illt.“ (Jobsbók 34:10) Guð er aldrei valdur að þeirri illsku og þjáningum sem eiga sér stað í heiminum.

Fleiri upplýsingar úr Biblíunni

  • Satan djöfullinn er „höfðingi heimsins“. Hann er aðalorsök þjáninganna. – Jóhannes 14:30.

  • Oft má rekja illsku og þjáningar til slæmra ákvarðana sem fólk tekur. – Jakobsbréfið 1:14, 15.

Taka þjáningar einhvern tíma enda?

Sumir halda að mennirnir geti bundið enda á þjáningar með því að allir leggist á eitt en aðrir eygja enga von um að heimurinn taki slíkum stakkaskiptum. Hvað heldur þú?

Hvað segir Biblían?

Guð mun binda enda á þjáningar. „Dauðinn mun ekki framar til vera, hvorki harmur né vein né kvöl er framar til.“ – Opinberunarbókin 21:3, 4.

Fleiri upplýsingar úr Biblíunni

  • Guð mun nota Jesú til að stöðva þjáningarnar sem Satan veldur. – 1. Jóhannesarbréf 3:8.

  • Gott fólk mun búa að eilífu við frið á jörð. – Sálmur 37:9-11, 29.

Nánari upplýsingar um hvers vegna Guð leyfir þjáningar er að finna í 11. kafla þessarar bókar, Hvað kennir Biblían?, sem gefin er út af Vottum Jehóva.

Einnig fáanleg á www.jw.org/is.

    Íslensk rit (1985-2025)
    Útskrá
    Innskrá
    • íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2025 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila