Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • w19 febrúar bls. 31
  • Vissir þú?

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Vissir þú?
  • Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2019
  • Svipað efni
  • Samkundan — þar sem Jesús og lærisveinar hans prédikuðu
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2010
Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2019
w19 febrúar bls. 31

Vissir þú?

Líkan af samkunduhúsi frá fyrstu öld sem fannst í Gamla.

Samkunduhús á fyrstu öld: Þetta líkan er eftirlíking af samkunduhúsi frá fyrstu öld í bænum Gamla, um 10 kílómetra norðaustur af Galíleuvatni. Það gefur nokkra hugmynd um hvernig samkunduhús gæti hafa litið út til forna.

Hvernig komu samkunduhús til sögunnar?

ORÐIÐ „samkunduhús“ er þýðing á gríska orðinu synagoge′ sem merkir „samkoma“ eða „að safnast saman“. Það er viðeigandi nafn þar sem Gyðingar hafa um aldaraðir safnast saman í samkunduhúsum til fræðslu og tilbeiðslu. Í Gamla testamentinu er hvergi talað beint um samkunduhús en af Nýja testamentinu er greinilegt að þau voru orðin vel þekkt á fyrstu öld.

Flestir fræðimenn telja að samkunduhús eigi rætur að rekja til útlegðar Gyðinga í Babýlon. Í alfræðibókinni Encyclopaedia Judaica segir: „Þegar Gyðingar voru í útlegð í ókunnu landi höfðu þeir ekkert musteri og þurftu á huggun að halda í erfiðleikum sínum. Þeir komu þá saman og lásu í Ritningunum, sennilega á hvíldardögum.“ Svo virðist vera að þeir hafi haldið áfram að safnast saman til að lesa í Ritningunum og biðja þegar þeir voru lausir úr útlegðinni. Þeir byggðu því samkunduhús hvar sem þeir settust að.

Á fyrstu öld voru samkunduhús orðin miðpunktur trúar- og félagslífs Gyðinga sem bjuggu á víð og dreif um Mið-Austurlönd, löndin umhverfis Miðjarðarhaf og í Ísrael. „[Samkunduhúsin] voru notuð fyrir fræðslu, helgimáltíðir, réttarhöld, framlög til þeirra sem voru hjálparþurfi, pólitíska fundi og sem félagsheimili,“ segir Lee Levine, prófessor við Hebreska háskólann í Jerúsalem. Hann bætir við: „Mikilvægastar voru þó auðvitað trúarsamkomurnar.“ Það kemur því ekki á óvart að Jesús kom oft í samkunduhúsin. (Mark. 1:21; 6:2; Lúk. 4:16) Þar kenndi hann fólki, hvatti það og uppörvaði. Eftir að kristni söfnuðurinn var stofnaður fór Páll postuli sömuleiðis oft í samkunduhúsin til að boða trúna. Þeir sem höfðu áhuga á andlegum málum sóttu gjarnan samkunduhúsin og því var Páll vanur að fara fyrst þangað til að boða trúna þegar hann kom í nýja borg. – Post. 17:1, 2; 18:4.

    Íslensk rit (1985-2025)
    Útskrá
    Innskrá
    • íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2025 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila