Lærðu um sögu og spádóma Biblíunnar
Geturðu svarað þessum spurningum eftir að hafa horft á myndbandið The Bible — Accurate History, Reliable Prophecy? (1) Frá hverjum eru hinar áreiðanlegu upplýsingar í Biblíunni? (Dan. 2:28) (2) Hvaða nákvæma mynd dregur Biblían upp af Egyptalandi til forna og hvernig rættist spádómurinn í Jesaja 19:3, 4? (3) Hvernig staðfestir fornleifafræðin lýsingu Biblíunnar á Assýringum? (Nah. 3:1, 7, 13) (4) Hvaða spádómar um Babýlon hafa ræst nákvæmlega? (5) Hvaða áhrif hafði Medía-Persía á fólk Guðs? (6) Hvernig rættist Daníel 8:5, 8 og hversu löngu fyrir fram var þessu spáð? (7) Hvernig reyndist Jesús vera hinn sanni Messías? (8) Hvaða stjórnmálaveldi nútímans uppfylla spádómana í Opinberunarbókinni 13:11 og 17:11? (9) Hvernig sýnir myndbandið fram á sannleiksgildi Prédikarans 8:9? (10) Hvernig hefur myndbandið styrkt trú þína á framtíðarfyrirheit Biblíunnar? (11) Hvernig geturðu notað þetta verkfæri til að sannfæra aðra um að Biblían sé frá Guði?