Hvað geturðu sagt um blöðin?
Varðturninn 1. febrúar
„Áður fyrr trúðu margir að jörðin myndi einhvern tíma verða að paradís. En núna halda margir að hún muni jafnvel farast. Hver heldur þú að framtíð jarðarinnar verði? [Gefðu kost á svari.] Taktu eftir því sem Biblían segir um þetta. [Lestu Sálm 37:11.] Í þessu blaði er fjallað nánar um það sem Biblían segir fyrir um framtíð jarðarinnar.“
Vaknið! janúar-mars
„Sumir hafa áhyggjur af því að búið sé að vinna varanlegt tjón á umhverfinu. Heldur þú að öll von sé úti? [Gefðu kost á svari.] Það var ekki ætlun skaparans að jörðin yrði óbyggilegur ruslahaugur. [Lestu Jesaja 45:18.] Í þessu blaði er útskýrt hvernig jörðinni verður bjargað.“
Kynning á Kröfubæklingnum
„Við höfum verið að tala við fólk um það hvers vegna það eru svona mörg trúarbrögð í heiminum, þó er Biblían aðeins ein. Hver heldur þú að sé ástæðan fyrir trúarbragðaóreiðunni? [Gefðu kost á svari. Flettu upp á 13. kafla í Kröfubæklingnum og lestu upphafsspurningarnar.] Þú færð fullnægjandi svör við þessum spurningum með því að lesa þennan kafla.“