Hvað geturðu sagt um blöðin?
Varðturninn 1. nóvember
„Mörgum blöskrar óréttlætið í heiminum. Heldurðu að einhver geti breytt heiminum til batnaðar? [Gefðu kost á svari.] Í þessu blaði er fjallað um hvaða hindranir þurfi að yfirstíga til að það sé hægt. Þar er líka bent á hver geti breytt heiminum og hvernig komið verði á sönnum friði og öryggi hér á jörðinni.“ Lestu Sálm 72:12-14.
Vaknið! október-desember
„Misnotkun áfengis er undirrót alls konar vandamála. Í þessu blaði er fjallað um áhrif áfengis á líkamann. [Sýndu myndina á bls. 7.] Í blaðinu er bent á hvernig fólk geti losnað úr ánauð áfengis og hvað aðrir geti gert til að hjálpa þeim sem eru þannig á vegi staddir.“
Kynning á Kröfubæklingnum
„Menn þurfa að takast á við margt í lífinu nú á tímum og því mætti spyrja hvort bænin geti komið okkur að raunverulegu gagni?[Gefðu kost á svari.] Margir segja að bænin veiti þeim innri styrk. [Lestu Filippíbréfið 4:6, 7.] Engu að síður getur þeim fundist að þeir fái ekki bænheyrslu. [Opnaðu Kröfubæklinginn á kafla 7.] Þessi bæklingur útskýrir hvernig bænin getur gagnast okkur sem best.“