Hvað geturðu sagt um blöðin?
Varðturninn janúar-mars
„Heldurðu að allt sem kennt er í kirkjunni sé sótt í Biblíuna? [Gefðu kost á svari.] Í Biblíunni er varað við ýmsum blekkingum sem eru í gangi í heiminum. [Lestu Kólossubréfið 2:8.] Í þessu blaði er flett ofan af sex trúarkenningum sem stangast á við Biblíuna.“
Vaknið! janúar-mars
„Margir þjást af þunglyndi. Heldurðu að Guði sé annt um líðan þeirra sem eiga við þungyndi að stríða? [Gefðu kost á svari. Lestu síðan Sálm 34:19.] Í þessu blaði kemur fram hvernig þeir sem eiga við þunglyndi að stríða geta fengið hjálp frá Guði, jafnvel þótt þeir þurfi kannski líka á læknishjálp að halda. Og þar eru ábendingar um hvernig við getum verið þeim til hughreystingar.“
Varðturninn janúar-mars
„Margir trúa ekki lengur að til sé skapari. Hver heldur þú að sé ástæðan fyrir því? [Gefðu kost á svari.] Í þessum versum er bent á mögulega ástæðu. [Lestu Habakkuk 1:2, 3.] Í þessari grein er að finna svör við algengum spurningum sem hafa vafist fyrir fólki og valdið því að sumir hafa misst trúna á Guð.“ Sýndu greinina sem hefst á bls. 11.