Spurningakassinn
◼ Ætti kona að bera höfuðfat ef hún heldur biblíunámskeið í dyragættinni og karlmaður, sem er boðberi, er viðstaddur?
Kona ætti að bera höfuðfat þegar hún heldur biblíunámskeið ef karlmaður, sem er boðberi, er viðstaddur. (1. Kor. 11:3-10) Þetta er útskýrt í Varðturninum 1. ágúst 2002, bls. 31, en þar segir: „Þetta er fyrir fram skipulögð kennslustund í umsjá ákveðins stjórnanda. Í slíkum tilvikum er námstundin þáttur í starfi safnaðarins. Ef skírð kona, sem er vottur Jehóva, sér um slíkt námskeið og skírður karlmaður, sem er vottur Jehóva, er viðstaddur, þá er rétt af henni að bera höfuðfat.“ Þetta gildir hvort sem biblíunámskeiðið er haldið inni á einkaheimili, í dyragætt eða við einhverjar aðrar aðstæður.
Ef ekki er enn hægt að kalla endurheimsóknina biblíunámskeið, þarf systir hins vegar ekki að bera höfuðfat þótt karlkyns boðberi sé viðstaddur, jafnvel þótt tilgangurinn sé að sýna hvernig biblíunámskeið í dyragættinni fari fram. Það sama á við þegar farið er yfir efni í einhverju þeirra námsrita sem mælt er með að við notum. Þar sem biblíunámskeið í dyragættinni fer yfirleitt ekki í gang fyrr en eftir nokkrar árangursríkar heimsóknir, þurfa boðberar að taka mið af aðstæðum og sýna dómgreind þegar þeir ákveða hvenær tímabært sé að bera höfuðfat.