FJÁRSJÓÐIR Í ORÐI GUÐS | POSTULASAGAN 1-3
Heilögum anda úthellt yfir kristna söfnuðinn
Margir Gyðingar á páskahátíðinni í Jerúsalem árið 33 komu frá öðrum löndum. (Post 2:9-11) Þótt þeir hafi fylgt Móselögunum hafa þeir kannski verið búsettir í öðru landi alla ævi. (Jer 44:1) Þess vegna hafa sumir þeirra kannski litið út og talað eins og fólk í heimalandi þeirra frekar en Gyðingar. Kristni söfnuðurinn varð skyndilega miklu fjölbreyttari þegar 3000 manns af ýmsu þjóðerni létu skírast. Þrátt fyrir mismunandi bakgrunn ,komu menn daglega saman með einum huga í helgidóminum‘. – Post 2:46.
Hvernig geturðu sýnt einlægan áhuga á ...
fólki á þínu starfssvæði sem er frá öðrum löndum?
bræðrum og systrum í söfnuðinum þínum sem eru frá öðrum löndum?