Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • mwb19 apríl bls. 8
  • Aflaðu þér menntunar frá Jehóva

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Aflaðu þér menntunar frá Jehóva
  • Líf okkar og boðun - vinnubók fyrir samkomur – 2019
  • Svipað efni
  • Menntun handa þjónum Guðsríkis
    Ríki Guðs stjórnar
  • Hvaða þjálfun fá vottar Jehóva?
    Spurningar og svör um Votta Jehóva
  • Vilt þú sækja um í Skólann fyrir boðbera Guðsríkis?
    Líf okkar og boðun - vinnubók fyrir samkomur – 2020
  • Sækjum um í Skólanum fyrir boðbera Guðsríkis
    Líf okkar og boðun - vinnubók fyrir samkomur – 2022
Sjá meira
Líf okkar og boðun - vinnubók fyrir samkomur – 2019
mwb19 apríl bls. 8

LÍF OKKAR Í KRISTINNI ÞJÓNUSTU

Aflaðu þér menntunar frá Jehóva

AF HVERJU ER ÞAÐ MIKILVÆGT? Jehóva, kennari okkar, býður okkur bestu menntun sem völ er á. Hann kennir okkur hvernig við getum bætt líf okkar og undirbýr okkur fyrir dásamlega framtíð, allt án endurgjalds. (Jes 11:6-9; 30:20, 21; Opb 22:17) Menntunin frá Jehóva gerir okkur kleift að færa öðrum boðskap sem getur bjargað mannslífum. – 2Kor 3:5.

HVERNIG FÖRUM VIÐ AÐ?

  • Þroskaðu með þér eiginleika eins og hógværð og auðmýkt. – Slm 25:8, 9.

  • Nýttu þér þá þjálfun sem stendur þér nú þegar til boða, til dæmis með því að taka að þér nemendaverkefni á samkomunni í miðri viku.

  • Settu þér markmið í þjónustu Jehóva. – Fil 3:13.

  • Færðu fórnir til að búa þig undir að fá frekari þjálfun. – Fil 3:8.

HORFÐU Á MYNDSKEIÐIÐ KENNSLA FRÁ JEHÓVA VEITIR BLESSUN OG SVARAÐU SÍÐAN EFTIRFARANDI SPURNINGUM:

  • Hvaða hindrunum þurftu sumir nemendur að sigrast á til að geta sótt Skólann fyrir boðbera Guðsríkis?

  • Hvers konar menntun veitir Skólinn fyrir boðbera Guðsríkis?

  • Hvernig hafa bræður og systur í söfnuðinum hjálpað þeim sem útskrifast að takast á við ný verkefni?

  • Hvaða skilyrði þarf að uppfylla til að geta sótt Skólann fyrir boðbera Guðsríkis? (kr 189)

  • Hvaða önnur þjálfun er í boði í söfnuði Jehóva?

Nemendur sem hafa sótt Skólann fyrir boðbera Guðsríkis boða trúna í Namibíu, Noregi, Bandaríkjunum og Japan.

Hvaða blessun hlýturðu ef þú aflar þér menntunar frá Jehóva?

ÞJÁLFUN SEM ÉG HEF NOTIÐ GÓÐS AF Í ÞJÓNUSTU JEHÓVA:

  • Líf okkar og boðun

  • Brautryðjendaskólinn

  • Ríkisþjónustuskólinn

  • Skólinn fyrir safnaðaröldunga

  • Skólinn fyrir boðbera Guðsríkis

HVAÐA ÞJÁLFUN LANGAR MIG AÐ FÁ Í ÞJÓNUSTU JEHÓVA?

    Íslensk rit (1985-2025)
    Útskrá
    Innskrá
    • íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2025 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila