Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • wp24 Nr. 1 bls. 3
  • Rétt og rangt: Við þurfum öll að velta því fyrir okkur

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Rétt og rangt: Við þurfum öll að velta því fyrir okkur
  • Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (almenn útgáfa) – 2024
  • Svipað efni
  • Sýnum trú og tökum skynsamlegar ákvarðanir
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2017
  • Heiðraðu Guð með ákvörðunum þínum
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2011
  • Hvernig getum við tekið góðar ákvarðanir?
    Von um bjarta framtíð – biblíunámskeið
  • Kynning
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (almenn útgáfa) – 2024
Sjá meira
Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (almenn útgáfa) – 2024
wp24 Nr. 1 bls. 3
Ungi maðurinn frá myndinni á undan fær hjálp frá þjóðgarðsverði sem notar kort til að sýna honum hvernig hann komist upp á fjallstindinn.

Rétt og rangt: Við þurfum öll að velta því fyrir okkur

Hvað myndirðu gera ef þú ætlaðir að ferðast á stað sem þú hefur aldrei farið á áður?

  1. 1. Fara í þá átt sem þú heldur að sé rétt.

  2. 2. Fylgja öðrum og vona að þeir rati.

  3. 3. Reiða þig á traustan leiðarvísi, eins og GPS-tæki eða kort, eða traustan vin sem þekkir leiðina.

Ef við veljum valkost eitt eða tvö komumst við eitthvert en ekki endilega þangað sem við ætluðum okkur. Ef við veljum þriðja valkostinn megum við hins vegar búast við að komast á áfangastað.

Lífið er eins og ferðalag – og við vonum að það leiði til hamingju. Hvort við komumst á þann áfangastað eða ekki ræðst að miklu leyti af því hvar við leitum leiðsagnar þegar við tökum ákvarðanir.

Fæstar ákvarðanir sem við tökum hafa langvarandi áhrif á líf okkar, en sumar eru þýðingarmeiri. Þær endurspegla siðferðisgildi okkar – viðhorf okkar til þess hvað er rétt og rangt. Slíkar ákvarðanir hafa áhrif á okkur og þá sem við elskum til langframa, annað hvort til góðs eða ills. Þessar ákvarðanir tengjast málum eins og …

  • kynlífi og hjónabandi.

  • heiðarleika, vinnu og peningum.

  • barnauppeldi.

  • framkomu við aðra.

Hvernig geturðu verið viss um að ákvarðanir þínar á þessum sviðum leiði til hamingjuríks lífs fyrir þig og fjölskyldu þína?

Spurningin sem hver og einn stendur frammi fyrir er þessi: Hvaða leiðsögn þigg ég þegar ég tek ákvarðanir í siðferðismálum?

Þetta blað útskýrir hvers vegna Biblían er traustur leiðarvísir í siðferðismálum og hvernig hún getur hjálpað þér.

    Íslensk rit (1985-2025)
    Útskrá
    Innskrá
    • íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2025 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila