Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • ijwbq grein 79
  • Er ríki Guðs innra með okkur?

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Er ríki Guðs innra með okkur?
  • Biblíuspurningar og svör
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • Svar Biblíunnar
  • Það sem Guðsríki getur þýtt fyrir þig
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1992
  • Er ríki Guðs í hjörtum okkar?
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2008
  • Sannleikurinn um ríki Guðs
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (almenn útgáfa) – 2020
  • Guðsríki er við völd
    Þekking sem leiðir til eilífs lífs
Sjá meira
Biblíuspurningar og svör
ijwbq grein 79
The outline of a human body, where no literal kingdom government could exist

Er ríki Guðs innra með okkur?

Svar Biblíunnar

Nei, Guðsríki er ekki tilfinning í hjarta kristinna manna.a Biblían bendir á hvar það er með því að kalla það „himnaríki“. (Matteus 4:17) Biblían sýnir að ríki Guðs er raunveruleg stjórn sem ríkir frá himnum. Skoðaðu rökin.

  • Ríki Guðs hefur stjórnendur, þegna, lög og umboð til að hrinda vilja Guðs í framkvæmd, bæði á himni og jörð. – Matteus 6:10; Opinberunarbókin 5:10.

  • „Allir menn, þjóðir og tungur“ verða þegnar stjórnar Guðs, það er að segja Guðsríkis. (Daníel 7:13, 14) Stjórnin fær völd sín beint frá Guði en ekki þegnunum. – Sálmur 2:4-6; Jesaja 9:7.

  • Jesús sagði trúum postulum sínum að þeir myndu verða með honum og „sitja í hásætum“ í ríki hans. – Lúkas 22:28, 30.

  • Guðsríki á óvini sem verður eytt. – Sálmur 2:1, 2, 8, 9; 110:1, 2; 1. Korintubréf 15:25, 26.

Biblían kennir ekki að Guðsríki sé innra með okkur í þeim skilningi að það ríki í hjörtum okkar. En Biblían sýnir að „orðið um ríkið“ eða „fagnaðarerindið um ríkið“ getur og ætti að hafa áhrif á hjörtu okkar. – Matteus 13:19; 24:14.

Hvað þýða orðin „Guðs ríki er innra með yður“?

Sumum finnst óljóst hvar Guðsríki er miðað við orðalagið í Lúkasi 17:21 í sumum biblíuþýðingum. Til dæmis segir í íslensku biblíunni frá 2010 „Guðs ríki er innra með yður“. Til að skilja þetta vers rétt er nauðsynlegt að skoða samhengið.

Some of the religious leaders who opposed Jesus

Guðsríki var ekki innra með eða í hjarta hinna forhertu og grimmu andstæðinga Jesú.

Jesús var að tala við faríseana, en það var hópur trúarleiðtoga sem var á móti honum og átti þátt í að láta taka hann af lífi. (Matteus 12:14; Lúkas 17:20) Er rökrétt að álykta að Guðsríki hafi verið tilfinning í forhertum hjörtum þeirra? Jesús sagði þeim að þeir væru „að innan fullir hræsni og ranglætis“. – Matteus 23:27, 28.

Neðanmáls í íslensku biblíunni frá 2010 kemur fram skýrari merking orða Jesú í Lúkasi 17:21. Þar segir: „Guðs ríki er meðal yðar.“ Sama merking kemur fram í sumum öðrum þýðingum eins og New World Translation. Ríki Guðs var „meðal“ faríseanna í þeim skilningi að Jesús, sá sem Guð hafði útnefnt til að ríkja sem konungur, stóð mitt á meðal þeirra. – Lúkas 1:32, 33.

a Margar kirkjudeildir kenna að Guðsríki sé innra með fólki eða í hjarta þess. Tökum sem dæmi Suður-baptista í Bandaríkjunum sem lýstu yfir að „ríki Guðs ríki að hluta til í lífi og hjarta einstaklingsins“. Benedikt páfi sextándi tók í sama streng í bók sinni Jesús frá Nasaret og sagði: „Guðsríki kemur með hlustandi hjarta“.

    Íslensk rit (1985-2025)
    Útskrá
    Innskrá
    • íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2025 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila