Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • ijwbq grein 80
  • Er fyrir fram ákveðið hvenær við deyjum?

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Er fyrir fram ákveðið hvenær við deyjum?
  • Biblíuspurningar og svör
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • Svar Biblíunnar
  • Ráða forlögin framtíð þinni?
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1991
  • „Það á hver maður að gjöra“
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1997
  • Líf þitt — Hvaða tilgang hefur það?
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1997
  • Höfuðþættir Prédikarans
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2006
Sjá meira
Biblíuspurningar og svör
ijwbq grein 80
Verið er að koma manni inn í sjúkrabíl og fólk sem á leið hjá horfir á.

Er fyrir fram ákveðið hvenær við deyjum?

Svar Biblíunnar

Nei, dánardagur okkar er ekki fyrir fram ákveðinn. Biblían styður ekki forlagatrú heldur segir að „tími og tilviljun“ ráði því oft að menn deyi. – Prédikarinn 9:11.

Stendur ekki í Biblíunni að það ‚hafi sinn tíma að deyja‘?

Jú, það er rétt. Í Prédikaranum 3:2 stendur: „Að fæðast hefur sinn tíma og að deyja hefur sinn tíma, að gróðursetja hefur sinn tíma og að uppræta hið gróðursetta hefur sinn tíma.“ En af samhenginu má sjá að Biblían er einfaldlega að ræða um þær hringrásir sem menn almennt búa við. (Prédikarinn 3:1–8) Guð hefur ekki ákveðið dánardag okkar hvers og eins, ekkert frekar en að hann þvingar bónda til að sá á ákveðnum tímapunkti. Lærdómurinn er öllu heldur sá að við ættum ekki að vera svo upptekin af veraldlegum hlutum að við gleymum skapara okkar. – Prédikarinn 3:11; 12:1, 13.

Við getum haft áhrif á ævilengd okkar

Þó að margt í lífinu sé óvisst er oft hægt að lifa lengur með því að taka skynsamlegar ákvarðanir. Í Biblíunni segir: „Kennsla hins vitra er lífslind og forðar frá snörum dauðans.“ (Orðskviðirnir 13:14) Móse sagði líka Ísraelsmönnum að þeir gætu ‚orðið langlífir‘ ef þeir hlýddu boðum Guðs. (5. Mósebók 6:2) Á hinn bóginn getur maður líka stytt lífið ef maður hegðar sér heimskulega. – Prédikarinn 7:17.

Sama hversu skynsöm eða varkár við erum getum við samt ekki umflúið dauðann. (Rómverjabréfið 5:12) Þetta á þó eftir að breytast því að Biblían lofar okkur að sá tími komi þegar „dauðinn verður ekki til framar“. – Opinberunarbókin 21:4.

    Íslensk rit (1985-2025)
    Útskrá
    Innskrá
    • íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2025 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila