Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • ijwyp grein 64
  • Ætti ég að stækka vinahópinn?

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Ætti ég að stækka vinahópinn?
  • Ungt fólk spyr
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • Vandamál sem geta komið upp í þröngum vinahóp
  • Það sem þú getur gert
  • Góðir eða slæmir vinir
    Vaknið! – 2005
  • Vandaðu val þitt á vinum
    Von um bjarta framtíð – biblíunámskeið
  • Hvernig get ég eignast góða vini?
    Spurningar unga fólksins – svör sem duga, 1. bindi
  • Þarf ég betri vini?
    Vaknið! – 2009
Sjá meira
Ungt fólk spyr
ijwyp grein 64
Unglingstúlkur stilla sér upp til að taka mynd af sér

UNGT FÓLK SPYR

Ætti ég að stækka vinahópinn?

„Ég er ánægður með vinahópinn minn og mér finnst mjög erfitt að stíga út fyrir þann þægindaramma.“ – Alan.

„Við erum fá í mínum vinahóp og þannig vil ég hafa það. Ég er ekki tilbúin að breyta til og tala við fólk sem ég þekki ekki.“ – Sara.

Líður þér eins og Alan og Söru? Tilheyrir þú þröngum vinahóp og finnst þér óþægilegt að kynnast fleirum?

Ef svo er þá er þessi grein fyrir þig.

  • Vandamál sem geta komið upp í þröngum vinahóp

  • Það sem þú getur gert

  • Það sem jafnaldrarnir segja

Vandamál sem geta komið upp í þröngum vinahóp

Það er ekkert að því að eiga nokkra nána vini. Þeim sem tilheyra þröngum vinahóp finnst mikilvægt að vera hluti af hóp og að þeim sé tekið eins og þeir eru – með kostum og göllum.

„Það er gott að vita að öðrum líkar við mann og að maður tilheyri ákveðnum hóp. Unglingar vilja bara falla í hópinn.“ – Karen, 19.

Vissir þú? Postularnir 12 voru í hópi fjölmargra vina Jesú en þrír þeirra – Pétur, Jakob og Jóhannes – voru nánustu vinir hans. – Markús 9:2; Lúkas 8:51.

Ef maður umgengst bara þröngan vinahóp – og útilokar aðra – getur það haft vandamál í för með sér. Tökum dæmi:

  • Það getur komið í veg fyrir að þú eignist frábæra vini.

    „Ef þú átt bara vini sem eru svipaðir þér, geturðu farið á mis við að reyna eitthvað nýtt – og kynnast frábæru fólki.“ – Evan, 21.

  • Þú gætir virst snobbaður.

    „Ef þú umgengst bara þröngan vinahóp mætti halda að þú viljir ekki tala við neina aðra.“ – Sara, 17.

  • Það gæti orðið til þess að þú tækir þátt í einelti.

    „Þú myndir kannski ekki vilja leggja neinn í einelti en ef vinahópurinn þinn gerði það, gæti þér allt í einu fundist það í lagi – jafnvel skemmtilegt. – James, 17.

  • Það gæti komið þér í klandur – sérstaklega ef þú vilt falla í hópinn hvað sem það kostar.

    „Það þarf ekki nema eina vonda manneskju í þröngum vinahóp til að allur hópurinn leiðist út í ranga breytni.“ – Martina, 17.

Það sem þú getur gert

  • Skoðaðu lífsgildi þín.

    Spyrðu þig: ,Hvaða lífsgildi hef ég? Gera vinir mínir mér auðveldara eða erfiðara að lifa eftir þeim? Myndi ég vilja halda í þessa vini sama hvað það kostar?‘

    Meginregla í Biblíunni: „Vondur félagsskapur spillir góðum siðum.“ – 1. Korintubréf 15:33.

    „Ef þeir sem tilheyra þínum vinahóp hafa ekki sömu lífsgildi og þú gætirðu leiðst út í að gera ýmislegt sem þú hefðir annars aldrei gert.“ – Ellen, 14.

  • Hugleiddu hvernig þú forgangsraðar.

    Spyrðu þig: ,Eru vinir mínir svo mikilvægir að ég myndi fórna lífsgildum mínum til að halda í þá? Hvað myndi ég gera ef vinur minn gerði eitthvað rangt?‘

    Meginregla í Biblíunni: „Ég tyfta og aga alla þá sem ég elska.“ – Opinberunarbókin 3:19.

    „Ef einhver í vinahópnum kemst í klandur og það truflar samvisku þína, gætu það virst svik ef þú segðir frá því.“ – Melanie, 22.

  • Reyndu að eignast fleiri vini.

    Spyrðu þig: ,Gæti kannski verið gott að eignast fleiri vini og kynnast betur einhverjum sem ég þekki ekki eins vel?‘

    Meginregla í Biblíunni: „Lítið ekki aðeins á eigin hag heldur einnig annarra.“ – Filippíbréfið 2:4.

    „Krakkar sem eru álitnir óvinsælir, búa kannski bara við erfiðar heimilisaðstæður. Þegar maður kynnist þeim kemst maður venjulega að því að þeir eru frábærir á sinn hátt.“ – Brian, 19.

Kjarni málsins: Það er ekkert athugavert við að tilheyra þröngum vinahóp. En það gæti verið gott fyrir þig að eignast fleiri vini. Biblían segir: „Örlátur maður hlýtur ríkulega umbun.“ – Orðskviðirnir 11:25.

Það sem jafnaldrarnir segja

Maryam

„Mér fannst spennandi að tilheyra ákveðnum vinahóp í skólanum en seinna sá ég að sumar stelpurnar lögðu aðra í einelti. Þá hætti ég að vera með þeim. Um tíma átti ég þess vegna enga vini en það var góð tilfinning að fylgja samviskunni.“ – Maryam.

Alex

„Ég reyndi að komast inn í ákveðinn vinahóp í skólanum bara til að auka vinsældir mínar. En svo sá ég að slæmur félagsskapur getur gert mann neikvæðan gagnvart öðru fólki og maður fer jafnvel að haga sér eins og einhver sem maður vill ekki líkjast.“ – Alex.

Bethany

„Síðustu árin í grunnskóla reyndi ég að komast inn í vinahóp sem vildi ekkert hafa með mig að gera. Seinna þegar ég skildi hvað ég hafði hagað mér heimskulega lærði ég að meta gömlu vini mína betur.“ – Bethany.

    Íslensk rit (1985-2025)
    Útskrá
    Innskrá
    • íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2025 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila