Neðanmáls
a Sumir hafa stungið upp á annarri skýringu: Gyðingar kunna að hafa orðið fyrir áhrifum grískrar heimspeki. Til dæmis var Fílon, Gyðingur og heimspekingur í Alexandríu sem var hér um bil samtíða Jesú, undir miklum áhrifum frá gríska heimspekingnum Platon sem hann áleit vera innblásinn af Guði. Í Lexikon des Judentums (Fjölfræðiorðabók um Gyðingdóminn) segir undir flettiorðinu „Fílon“ að Fílon hafi „sameinað tungutak og hugmyndir grískrar heimspeki (Platon) við opinberaða trú Gyðinga“ og að í byrjun hafi hann haft „merkjanleg áhrif á kristnu kirkjufeðurna.“ Fílon kenndi að Guð yrði ekki skilgreindur og yrði því ekki nefndur neinu nafni.