Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • ijwbq grein 173
  • Hvenær byrjaði Guð að skapa alheiminn?

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Hvenær byrjaði Guð að skapa alheiminn?
  • Biblíuspurningar og svör
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • Svar Biblíunnar
  • Voru sköpunardagarnir sex bókstaflegir 24 klukkustunda dagar?
  • Hvað gerðist á sköpunardögunum sex?
  • Stenst frásaga 1. Mósebókar vísindalega skoðun?
  • Hvenær voru sólin, tunglið og stjörnurnar skapaðar?
  • Hve gömul er jörðin samkvæmt Biblíunni?
  • Hvað lærum við af Biblíunni?
    Vaknið! – 2021
  • Hvað segir sköpunarsaga Biblíunnar?
    Lífið — varð það til við þróun eða sköpun?
  • Stangast sköpunarsagan á við vísindin?
    Vaknið! – 2006
  • Vísindin og sköpunarsagan
    Var lífið skapað?
Sjá meira
Biblíuspurningar og svör
ijwbq grein 173
Plánetur og stjörnur í geimnum.

Hvenær byrjaði Guð að skapa alheiminn?

Svar Biblíunnar

Biblían segir hvorki hvenær sköpun alheimsins hófst né hve lengi hún stóð. Hún segir einfaldlega: „Í upphafi skapaði Guð himin og jörð.“ (1. Mósebók 1:1) Biblían tilgreinir ekki hvenær upphafið átti sér stað. En atburðarásin í 1. Mósebók tímasetur það á undan sköpunartímabilunum, eða „dögunum“, sex.

  • Voru sköpunardagarnir sex bókstaflegir 24 klukkustunda dagar?

  • Hvað gerðist á sköpunardögunum sex?

  • Stenst frásaga 1. Mósebókar vísindalega skoðun?

  • Hvenær voru sólin, tunglið og stjörnurnar skapaðar?

  • Hve gömul er jörðin samkvæmt Biblíunni?

Voru sköpunardagarnir sex bókstaflegir 24 klukkustunda dagar?

Nei. Í Biblíunni getur orðið „dagur“ átt við mislöng tímaskeið allt eftir samhenginu. Til dæmis lýsir frásagan á einum stað öllu sköpunarferlinu sem einum degi. – 1. Mósebók 2:4.

Hvað gerðist á sköpunardögunum sex?

Guð breytti jörðinni frá því að vera „auðn og tóm“ í byggilega plánetu. (1. Mósebók 1:2) Síðan skapaði hann líf á jörðinni. Biblían lýsir sex atburðarásum sem gerðust á þessum dögum, eða tímaskeiðum, sköpunarinnar.

  • Ljós og myrkur.

    Dagur 1: Guð lét ljós ná til yfirborðs jarðar. Þannig hófst hringrás dags og nætur . – 1. Mósebók 1:3–5.

  • Himinn og haf.

    Dagur 2: Guð myndaði víðáttu milli vatnsins á yfirborði jarðar og vatnsins hátt yfir yfirborði hennar. – 1. Mósebók 1:6–8.

  • Þurrlendi jarðar og gróður.

    Dagur 3: Guð lét þurrlendið birtast. Hann skapaði líka gróðurinn. – 1. Mósebók 1:9–13.

  • Sól, tungl og stjörnur sýnilegar frá yfirborði jarðar.

    Dagur 4: Guð gerði sólina, tunglið og stjörnurnar sýnilegar sem ljósgjafa frá yfirborði jarðarinnar. – 1. Mósebók 1:14–19.

  • Sjávardýr og fleyg dýr.

    Dagur 5: Guð skapaði sjávardýr og fleyg dýr. – 1. Mósebók 1:20–23.

  • Landdýr og menn.

    Dagur 6: Guð skapaði landdýr og menn. – 1. Mósebók 1:24–31.

Þegar sjötta deginum lauk hvíldist Guð eftir verk sín, eða hætti að skapa. – 1. Mósebók 2:1, 2.

Stenst frásaga 1. Mósebókar vísindalega skoðun?

Biblían heldur því ekki fram ekki að frásagan af sköpun heimsins sé vísindalega ítarleg greinargerð. Hún lýsir sköpuninni með þeim hætti að lesendur allt frá biblíutímanum gátu áttað sig á atburðarásinni í stórum dráttum. Frásagan af sköpuninni stangast ekki á við vísindalegar staðreyndir. Stjarneðlisfræðingurinn Robert Jastrow skrifar: „Öll smáatriðin eru ólík en aðalatriðin í stjarnfræðilegu sögunni og sögu 1. Mósebókar eru eins. Atburðarásin allt fram að tilkomu mannsins gerist allt einu og með látum á ákveðnum tímapunkti.“

Hvenær voru sólin, tunglið og stjörnurnar skapaðar?

Sólin, tunglið og stjörnurnar voru þegar til sem hluti himinsins sem Guð skapaði „í upphafi“. (1. Mósebók 1:1) En birtan frá þeim náði ekki til yfirborðs jarðar vegna mjög þétts andrúmslofts. (1. Mósebók 1:2) Þó að dreifð birta hafi orðið sýnileg á fyrsta degi var enn ekki hægt að greina ljósgjafana. Á fjórða sköpunardeginum létti til í andrúmslofti jarðarinnar. Biblían segir að sól, tungl og stjörnur hafi farið að „bera jörðinni birtu“, sem greinilega lýsir því hvernig það hefði litið út frá sjónarhóli einhvers á jörðinni. – 1. Mósebók 1:17.

Hve gömul er jörðin samkvæmt Biblíunni?

Biblían segir ekkert um aldur jarðarinnar. Fyrsta Mósebók 1:1 segir einfaldlega að alheimurinn og þar með talin jörðin eigi sér upphaf. Þessi fullyrðing stangast hvorki á við vísindalegar staðreyndir né ályktanir vísindamanna um aldur jarðar.

    Íslensk rit (1985-2025)
    Útskrá
    Innskrá
    • íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2025 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila