-
Er „viskan sem kemur ofan að“ að verki í lífi þínu?Nálgastu Jehóva
-
-
11 Hvað ættirðu að gera ef þú finnur á þér að þú hefur móðgað einhvern í söfnuðinum? Jesús sagði: „Ef þú ert að koma með fórn þína að altarinu og manst þá að bróðir þinn hefur eitthvað á móti þér skaltu því skilja fórnina eftir fyrir framan altarið. Farðu fyrst og sæstu við bróður þinn. Komdu síðan aftur og færðu fórnina.“ (Matteus 5:23, 24) Þú getur farið eftir þessu með því að fara til bróður þíns að eigin frumkvæði í þeim tilgangi að ‚sættast við hann‘.b Þú þarft að viðurkenna særðar tilfinningar hans. Reyndu ekki að gera lítið úr þeim. Ef þú ferð til hans í þeim tilgangi að koma á friði og viðhalda honum, þá er að öllum líkindum hægt að eyða misskilningi, biðjast afsökunar og fyrirgefa. Ef þú leggur lykkju á leið þína til að semja frið sýnirðu að þú hefur visku Guðs að leiðarljósi.
-
-
Er „viskan sem kemur ofan að“ að verki í lífi þínu?Nálgastu Jehóva
-
-
b Gríska sagnorðið, sem er þýtt ‚sættast‘, hefur verið skilgreint sem það „að breyta fjandskap í vináttu; að koma á sáttum; að endurheimta eðlilegt samband eða sátt og samlyndi“. Markmiðið er því að valda breytingu, að fjarlægja óvild úr hjarta hins móðgaða ef þess er kostur. – Rómverjabréfið 12:18.
-