FJÁRSJÓÐIR Í ORÐI GUÐS | LÚKAS 10-11
Dæmisagan um miskunnsama Samverjann
Jesús sagði dæmisögu þegar hann var spurður: ,Hver er náungi minn?‘ (Lúk 10:25-29) Hann vissi að alls konar fólk, þar á meðal Samverjar og fólk af þjóðunum, myndi tilheyra kristna söfnuðinum. (Jóh 12:32) Fylgjendur hans lærðu af þessari dæmisögu að þeir ættu að leggja lykkju á leið sína til að sýna öðrum kærleika, líka fólki sem væri mjög ólíkt þeim sjálfum.
HUGLEIDDU EFTIRFARANDI SPURNINGAR:
Hvernig lít ég á trúsystkini mín af annarri menningu?
Ver ég aðallega tíma með þeim sem ég á ýmislegt sameiginlegt með?
Gæti ég gert rúmgott í hjartanu og kynnst betur trúsystkinum mínum sem hafa annan bakgrunn en ég? (2Kor 6:13)
Hverjum gæti ég boðið ...
að boða trúna með mér?
í mat til mín?
að vera með okkur fjölskyldunni í tilbeiðslustundinni eitthvert kvöldið?