Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • Hver er Jesús?
    Von um bjarta framtíð – biblíunámskeið
    • 4. Jesús er ekki almáttugur Guð

      Biblían kennir að þó að Jesús sé voldug andavera á himni sé hann undirgefinn Guði sínum og föður, Jehóva. Hvernig vitum við það? Spilið MYNDBANDIÐ til að sjá hvað Biblían kennir um muninn á Jesú og Guði almáttugum.

      MYNDBAND: Er Jesús Kristur Guð? (3:22)

      Eftirfarandi biblíuvers hjálpa okkur að skilja samband Jehóva og Jesú. Lesið hverja biblíuvísun fyrir sig og ræðið síðan spurningarnar sem fylgja.

      Lesið Lúkas 1:30–32.

      • Hvernig lýsti engillinn sambandinu milli Jesú og Jehóva Guðs, „Hins hæsta“?

      Lesið Matteus 3:16, 17.

      • Hvað sagði röddin af himni við skírn Jesú?

      • Hver heldurðu að hafi talað?

      Lesið Jóhannes 14:28.

      • Hvor er eldri og hefur meira vald, faðir eða sonur?

      • Hvað átti Jesús við þegar hann kallaði Jehóva föður sinn?

      Lesið Jóhannes 12:49.

      • Sér Jesús sig og föður sinn sem sömu persónuna? Telur þú að þeir séu sama persónan?

  • Hvað er ríki Guðs?
    Von um bjarta framtíð – biblíunámskeið
    • Kafli 31. Jesús Kristur frammi fyrir dýrð Jehóva sem konungur á himni.

      KAFLI 31

      Hvað er ríki Guðs?

      Aðalboðskapur Biblíunnar er um ríki Guðs. Jehóva mun nota þetta ríki til að koma til leiðar upprunalegri fyrirætlun sinni með jörðina. Hvað er þetta ríki? Hvernig vitum við að það fer með stjórn núna? Hverju hefur það nú þegar komið til leiðar? Og hvað á það eftir að gera? Þessi kafli og næstu tveir svara þessum spurningum.

      1. Hvað er ríki Guðs og hver er konungur þess?

      Guðsríki er stjórn sem Jehóva Guð stofnsetti. Jesús Kristur er konungur þess og hann ríkir frá himni. (Matteus 4:17; Jóhannes 18:36) Í Biblíunni segir um Jesú: „Hann mun ríkja sem konungur … að eilífu.“ (Lúkas 1:32, 33) Sem konungur Guðsríkis mun Jesús ríkja yfir öllum á jörðinni.

      2. Hverjir ríkja með Jesú?

      Jesús ríkir ekki einn. Fólk „af hverjum ættflokki, tungu, kynþætti og þjóð … á að ríkja sem konungar yfir jörðinni“. (Opinberunarbókin 5:9, 10) Hversu margir munu ríkja með Kristi? Síðan Jesús kom til jarðarinnar hafa milljónir manna orðið fylgjendur hans. En það fara ekki nema 144.000 af þeim til himna til að ríkja með Jesú. (Lestu Opinberunarbókina 14:1–4.) Allir aðrir fylgjendur Krists á jörðinni verða þegnar Guðsríkis. – Sálmur 37:29.

      3. Hvers vegna er ríki Guðs betra en stjórnir manna?

      Jafnvel þegar mennskir stjórnendur vilja gera vel hafa þeir ekki vald til að gera allt sem þeir vilja. Fyrr eða síðar koma aðrir stjórnendur í þeirra stað og það er ekkert víst að þeir beri hag þegna sinna fyrir brjósti. En það kemur enginn í stað Jesú sem konungur í ríki Guðs. Guð hefur ‚stofnsett ríki sem verður aldrei eytt‘. (Daníel 2:44) Jesús mun ríkja yfir allri jörðinni og hann kemur eins fram við alla. Hann er kærleiksríkur, góður og réttlátur og hann mun kenna fólki að koma fram hvert við annað á sama hátt – af kærleika, góðvild og réttlæti. – Lestu Jesaja 11:9.

      KAFAÐU DÝPRA

      Kynntu þér hvers vegna ríki Guðs er betra en allar stjórnir manna.

      Jesús Kristur ríkir yfir jörðinni frá himnesku hásæti sínu. Meðstjórnendur hans sitja bak við hann. Jehóva skín skært að baki þeim.

      4. Voldug stjórn sem mun ríkja yfir allri jörðinni

      Jesús Kristur hefur meira vald en nokkur stjórnandi sögunnar. Lesið Matteus 28:18 og ræðið síðan eftirfarandi spurningu:

      • Hver er munurinn á valdi Jesú og valdi mennskra stjórnenda?

      Stjórnir manna breytast oft og hver um sig ríkir aðeins yfir hluta af jörðinni. En hvað um ríki Guðs? Lesið Daníel 7:14 og ræðið síðan eftirfarandi spurningar:

      • Hvers vegna er gott að ríki Guðs „verður aldrei eytt“?

      • Hvers vegna er gott að það mun ríkja yfir allri jörðinni?

      5. Það þarf að skipta út stjórnum manna

      Hvers vegna þarf ríki Guðs að koma í stað mannlegra stjórna? Spilið MYNDBANDIÐ og ræðið síðan eftirfarandi spurningu:

      MYNDBAND: Hvað er ríki Guðs? – útdráttur (1:41)

      • Hvað hafa stjórnir manna haft í för með sér?

      Lesið Prédikarann 8:9 og ræðið síðan eftirfarandi spurningar:

      • Finnst þér að ríki Guðs ætti að koma í stað mannlegra stjórna? Hvers vegna?

      6. Stjórnendur Guðsríkis skilja okkur

      Konungur okkar, Jesús, lifði sem maður og getur þess vegna haft „samúð með okkur í veikleika okkar“. (Hebreabréfið 4:15) Jehóva hefur valið 144.000 trúfasta menn og konur af „hverjum ættflokki, tungu, kynþætti og þjóð“ til að ríkja með Jesú. – Opinberunarbókin 5:9.

      • Finnst þér hughreystandi að Jesús og allir meðstjórnendur hans skuli þekkja hvernig það er að vera manneskja? Hvers vegna?

      Andasmurðir karlar og konur frá ýmsum tímum og af alls konar uppruna.

      Jehóva hefur valið karla og konur af alls konar uppruna til að ríkja með Jesú.

      7. Lög Guðsríkis eru þau bestu

      Ríkisstjórnir setja lög sem er ætlað að vera til gagns og verndar fyrir þegnana. Ríki Guðs hefur líka sett lög sem þegnar þess eiga að fylgja. Lesið 1. Korintubréf 6:9–11 og ræðið síðan eftirfarandi spurningar:

      • Hvernig heldurðu að heimurinn verði þegar allir fylgja hegðunarreglum Guðs?a

      • Finnst þér sanngjarnt af Jehóva að ætlast til þess af þegnum Guðsríkis að virða þessar reglur? Hvers vegna?

      • Hvernig vitum við að fólk sem hlýðir ekki lögum Guðs getur breytt sér? – Sjá 11. vers.

      Lögregluþjónn stöðvar umferð á stórum gatnamótum. Fólk á ýmsum aldri gengur yfir götuna.

      Ríkisstjórnir setja lög til gagns og verndar fyrir þegna sína. Ríki Guðs hefur sett mikið betri lög til gagns og verndar þegnum sínum.

      SUMIR SEGJA: „Guðsríki er innra með okkur.“

      • Hvað myndir þú segja við því?

      SAMANTEKT

      Ríki Guðs er raunveruleg stjórn á himni sem mun ríkja yfir allri jörðinni.

      Upprifjun

      • Hverjir fara með stjórn í ríki Guðs?

      • Hvers vegna er ríki Guðs betra en allar stjórnir manna?

      • Nefndu dæmi um það sem Jehóva ætlast til af þegnum Guðsríkis.

      Markmið

      KANNAÐU

      Lestu um hvar Jesús sagði að ríki Guðs væri.

      „Er ríki Guðs innra með okkur?“ (Vefgrein)

      Hvers vegna kjósa vottar Jehóva að sýna ríki Guðs hollustu frekar en stjórnum manna?

      Ríki Guðs sýnd tryggð og hollusta (1:43)

      Skoðaðu hvað Biblían segir um hinar 144.000 sem Jehóva velur til að ríkja með Jesú.

      „Hverjir fara til himna?“ (Vefgrein)

      Hvað sannfærði konu í fangelsi um að aðeins Guð gæti komið á réttlæti í heiminum?

      „Ég fann svarið við óréttlætinu“ (Vaknið! janúar 2012)

      a Sumar af þessum hegðunarreglum eru ræddar í 3. hluta.

Íslensk rit (1985-2025)
Útskrá
Innskrá
  • íslenska
  • Deila
  • Stillingar
  • Copyright © 2025 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
  • Notkunarskilmálar
  • Persónuverndarstefna
  • Persónuverndarstillingar
  • JW.ORG
  • Innskrá
Deila