Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • kr kafli 17 bls. 182-191
  • Menntun handa þjónum Guðsríkis

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Menntun handa þjónum Guðsríkis
  • Ríki Guðs stjórnar
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • ‚Ég tala það eitt sem faðirinn hefur kennt mér‘
  • Þjónunum kennt að boða fagnaðarerindið
  • Bræður fá kennslu til að sinna sérstökum verkefnum
  • Skólar í boði safnaðarins – sönnun þess að Jehóva elskar okkur
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2012
  • Hvaða þjálfun fá vottar Jehóva?
    Spurningar og svör um Votta Jehóva
  • Nýtirðu þér fræðsluna frá Jehóva til fulls?
    Ríkisþjónusta okkar – 2011
  • Hvaða menntun stendur brautryðjendum til boða?
    Hverjir gera vilja Jehóva?
Sjá meira
Ríki Guðs stjórnar
kr kafli 17 bls. 182-191

17. KAFLI

Menntun handa þjónum Guðsríkis

Í ÞESSUM KAFLA

Skólar á vegum safnaðarins búa þjóna Guðsríkis undir að gera verkefnum sínum skil.

1-3. Hvernig færði Jesús út kvíarnar og hvaða spurningar vakna?

JESÚS er búinn að boða fagnaðarerindið víðs vegar um Galíleu í tvö ár. (Lestu Matteus 9:35-38.) Hann hefur heimsótt þorp og bæi, kennt í samkunduhúsum og boðað fagnaðarerindið um ríkið. Fólk hópast að honum hvert sem hann kemur. „Uppskeran er mikil,“ segir hann og bætir við að það vanti fleiri verkamenn.

2 Jesús færði út kvíarnar. Hvernig? Hann sendi postulana 12 að „boða Guðs ríki“. (Lúk. 9:1, 2) Vera má að postularnir hafi haft ýmsar spurningar um þetta verkefni. Áður en Jesús sendi þá af stað gerði hann hið sama fyrir þá eins og faðir hans hafði gert fyrir hann – hann kenndi þeim og leiðbeindi.

3 Það koma ýmsar spurningar upp í hugann: Hvaða kennslu fékk Jesús hjá föður sínum? Hvernig kenndi hann postulunum? Hvað um okkar tíma – hefur konungurinn Messías kennt fylgjendum sínum að gera verkefnum sínum skil? Og hvernig hefur hann þá kennt þeim?

‚Ég tala það eitt sem faðirinn hefur kennt mér‘

4. Hvar og hvenær fékk Jesús kennslu hjá föður sínum?

4 Jesús sagðist hafa fengið kennslu hjá föður sínum. ‚Ég tala það eitt sem faðirinn hefur kennt mér,‘ sagði hann meðan hann þjónaði hér á jörð. (Jóh. 8:28) Hvar og hvenær fékk Jesús þessa kennslu? Hún hófst greinilega eftir að hann, frumburður Guðs, var skapaður. (Kól. 1:15) Hann hlustaði á kennara sinn á himnum og fylgdist með honum um óralangan tíma. (Jes. 30:20) Þannig fékk hann óviðjafnanlega menntun og kynntist náið eiginleikum föður síns, verkum og vilja.

5. Hvað kenndi faðirinn syni sínum um starfið sem hann átti að vinna á jörð?

5 Þegar fram liðu stundir fræddi Jehóva son sinn um starfið sem hann átti að vinna á jörð. Lítum á spádóm sem lýsir sambandi kennarans mikla, Jehóva, og frumgetins sonar hans. (Lestu Jesaja 50:4, 5.) Jehóva vakti son sinn „á hverjum morgni“, segir í spádóminum. Þarna er dregin upp mynd af kennara sem vekur nemanda sinn snemma morguns til að kenna honum. Í biblíuhandbók segir: „Það er eins og Jehóva ... fari með nemandann í skólann og kenni honum hvað hann eigi að boða og hvernig.“ Í þessum himneska „skóla“ kenndi Jehóva syni sínum ‚hvað hann ætti að segja og hvað hann ætti að tala‘. (Jóh. 12:49) Faðirinn fræddi soninn einnig um kennsluaðferðir.a Jesús notaði þekkingu sína vel meðan hann var á jörð, ekki aðeins þegar hann boðaði fagnaðarerindið heldur einnig þegar hann kenndi fylgjendum sínum hvernig þeir ættu að fara að.

6, 7. (a) Hvað kenndi Jesús postulunum og undir hvað bjó hann þá? (b) Hvers konar kennslu hefur Jesús veitt fylgjendum sínum á okkar dögum?

6 Í byrjun kaflans kom fram að Jesús hafi kennt postulunum. Hvað kenndi hann þeim? Samkvæmt 10. kafla Matteusarguðspjalls gaf hann þeim skýrar leiðbeiningar um boðunina, meðal annars eftirfarandi: hvar þeir áttu að boða (vers 5 og 6), hvaða boðskap þeir áttu að boða (vers 7), að þeir þyrftu að treysta Jehóva (vers 9 og 10), hvernig þeir ættu að taka fólk tali (vers 11-13), hvernig þeir ættu að bregðast við höfnun (vers 14 og 15) og viðbrögð við ofsóknum (vers 16-23).b Með markvissri kennslu sinni bjó hann postulana undir að fara með forystu í boðun fagnaðarerindisins á fyrstu öld.

7 Hvað um okkar daga? Jesús, konungur Guðsríkis, hefur falið fylgjendum sínum mikilvægasta verkefni sem hugsast getur, það er að segja að boða „fagnaðarerindið um ríkið ... um alla heimsbyggðina til þess að allar þjóðir fái að heyra það“. (Matt. 24:14) Hefur konungurinn kennt okkur að vinna þetta þýðingarmikla verk? Svo sannarlega. Af himni ofan hefur hann séð til þess að fylgjendur sínir fái kennslu og þjálfun í að boða fagnaðarerindið meðal almennings og rækja ýmsar skyldur innan safnaðarins.

Þjónunum kennt að boða fagnaðarerindið

8, 9. (a) Hvert var meginmarkmið Boðunarskólans? (b) Hvernig hefur samkoman í miðri viku auðveldað þér að gera boðuninni betri skil?

8 Söfnuður Jehóva hefur lengi notað mót og safnaðarsamkomur, svo sem þjónustusamkomuna, sem vettvang til að kenna þjónum hans að boða fagnaðarerindið og þjálfa þá. En upp úr 1940 settu bræðurnir, sem fóru með forystu við aðalstöðvarnar, á laggirnar skóla til að veita frekari menntun. Og skólunum hefur fjölgað með tímanum.

9 Boðunarskólinn. Eins og fram kom í kaflanum á undan tók þessi skóli til starfa árið 1943. Var markmið hans aðeins að þjálfa nemendur í að flytja ræður á safnaðarsamkomum? Nei. Meginmarkmið skólans var að þjálfa þjóna Jehóva í að nota tunguna til að lofa hann í boðunarstarfinu. (Sálm. 150:6) Allir bræður og systur, sem voru skráð í skólann, urðu færari boðberar fagnaðarerindisins. Núna er þessi þjálfun veitt á samkomunni í miðri viku.

10, 11. Hverjum er Gíleaðskólinn ætlaður núna og hvaða markmiði þjónar námsskráin?

10 Biblíuskólinn Gíleað. Biblíuskólinn Gíleað, sem nú heitir svo, tók til starfa mánudaginn 1. febrúar 1943. Skólinn hafði upphaflega það hlutverk að mennta brautryðjendur og aðra þjóna Guðs í fullu starfi til að vera trúboðar einhvers staðar í heiminum. Síðan í október 2011 hefur hann hins vegar aðeins verið ætlaður sérbrautryðjendum, farandumsjónarmönnum og eiginkonum þeirra, Betelítum og trúboðum sem hafa ekki enn sótt skólann.

11 Hvaða markmiði þjónar námsskrá Gíleaðskólans? Gamalreyndur leiðbeinandi við skólann segir: „Að styrkja trú nemenda með rækilegu biblíunámi, og hjálpa þeim að þroska með sér þá eiginleika sem þarf til að ráða við þær áskoranir sem fylgja verkefnum þeirra. Annað meginmarkmið námsskrárinnar er að vekja enn sterkari löngun með nemendunum til að boða fagnaðarerindið.“ – Ef. 4:11.

12, 13. Hvaða áhrif hefur Gíleaðskólinn haft á boðunina í heiminum? Nefndu dæmi.

12 Hvaða áhrif hefur Gíleaðskólinn haft á boðunina í heiminum? Síðan 1943 hafa rúmlega 8.500 vottar setið skólannc og trúboðar frá Gíleað hafa starfað í meira en 170 löndum víða um heim. Trúboðarnir nota menntun sína vel. Þeir eru ötulir við boðunina og kenna öðrum að gera slíkt hið sama. Í mörgum tilvikum hafa þeir rutt brautina á svæðum þar sem voru fáir ef nokkrir boðberar Guðsríkis.

13 Tökum Japan sem dæmi. Skipuleg boðun meðal almennings stöðvaðist næstum því í síðari heimsstyrjöldinni. Í ágúst 1949 voru innan við tíu innfæddir boðberar í Japan. En í árslok voru 13 trúboðar frá Gíleað önnum kafnir að boða fagnaðarerindið þar. Margir trúboðar fylgdu í kjölfarið. Í fyrstu einbeittu þeir sér að því að starfa í stærstu borgunum en fluttu sig síðar til annarra borga. Þeir hvöttu nemendur sína og aðra eindregið til að gerast brautryðjendur. Brennandi áhugi trúboðanna skilaði sér. Núna eru yfir 216.000 boðberar í Japan og næstum 40 prósent þeirra eru brautryðjendur.d

14. Hvað sannar tilvist þeirra skóla sem söfnuðurinn starfrækir? (Sjá einnig yfirlitsgreinina „Skólar handa þjónum Guðsríkis“, bls. 188.)

14 Aðrir skólar á vegum safnaðarins. Brautryðjendaskólinn, Biblíuskólinn fyrir hjón og Biblíuskólinn fyrir einhleypa bræður hafa hjálpað nemendum að styrkja sinn andlega mann og taka góða forystu í boðun fagnaðarerindisins.e Allir þessir skólar eru eindregin sönnun þess að konungurinn hafi menntað fylgjendur sína svo að þeir geti gert boðuninni góð skil. – 2. Tím. 4:5.

Bræður fá kennslu til að sinna sérstökum verkefnum

15. Hvernig vilja bræður, sem gegna ábyrgðarstörfum, líkja eftir Jesú?

15 Víkjum aftur að spádómi Jesaja þar sem talað er um að Jesús hafi fengið kennslu hjá Jehóva. Í þessum himneska „skóla“ lærði sonurinn að „styrkja hinn þreytta með orðum“. (Jes. 50:4) Jesús gerði eins og honum hafði verið kennt. Meðan hann var á jörð endurnærði hann þá sem ‚erfiðuðu og þunga voru hlaðnir‘. (Matt. 11:28-30) Þeir sem gegna ábyrgðarstörfum í söfnuðinum líkja eftir Jesú og reyna að endurnæra bræður sína og systur. Ýmsir skólar hafa verið settir á laggirnar til að hjálpa hæfum bræðrum að þjóna trúsystkinum sínum enn betur.

16, 17. Hvert er markmiðið með Ríkisþjónustuskólanum? (Sjá einnig neðanmálsgrein.)

16 Ríkisþjónustuskóli. Þessi skóli tók til starfa 9. mars 1959 í South Lansing í New York. Farandumsjónarmönnum og safnaðarþjónum (sem nú kallast umsjónarmaður öldungaráðsins) var boðið að sitja mánaðarlangt námskeið þar. Síðar var námskeiðið þýtt úr ensku á önnur tungumál og smám saman fengu bræður út um allan heim tækifæri til að sitja það.f

Lloyd Barry kennir bekk í Ríkisþjónustuskólanum í Japan árið 1970.

Bróðir Lloyd Barry kennir í Ríkisþjónustuskólanum í Japan árið 1970.

17 Í árbók Votta Jehóva 1962 segir um markmið Ríkisþjónustuskólans: „Í öllu annríki þessa heims þarf umsjónarmaður í söfnuði Votta Jehóva að geta skipulagt líf sitt þannig að hann geti sýnt öllum í söfnuðinum viðeigandi umhyggju og verið þeim til blessunar. En hann má ekki vanrækja fjölskyldu sína til að sinna söfnuðinum. Hann þarf að hafa góða dómgreind. Safnaðarþjónar um heim allan hafa fengið prýðistækifæri til að safnast saman í Ríkisþjónustuskólanum. Þar fá þeir menntun sem hjálpar þeim að gera það sem Biblían segir að umsjónarmaður eigi að geta áorkað.“ – 1. Tím. 3:1-7; Tít. 1:5-9.

18. Hvernig njóta allir þjónar Guðs góðs af Ríkisþjónustuskólanum?

18 Allir þjónar Guðs hafa notið góðs af Ríkisþjónustuskólanum. Hvernig þá? Þegar öldungar og safnaðarþjónar fara eftir því sem þeir læra í skólanum endurnæra þeir trúsystkini sín, rétt eins og Jesús gerði. Kanntu ekki að meta hlýleg orð, einhvern sem ljáir þér eyra eða uppörvandi heimsókn öldungs eða safnaðarþjóns sem lætur sér annt um þig? (1. Þess. 5:11) Þessir bræður eru söfnuðinum til mikillar blessunar.

19. Hvaða öðrum skólum hefur fræðslunefndin umsjón með og hvaða hlutverki gegna þeir?

19 Aðrir skólar á vegum safnaðarins. Fræðslunefnd hins stjórnandi ráðs hefur umsjón með öðrum skólum sem eru ætlaðir bræðrum í ábyrgðarstöðum í söfnuðinum. Þessir skólar hafa það markmið að auðvelda safnaðaröldungum, farandumsjónarmönnum og bræðrum í deildarnefndum að rækja skyldur sínar sem best. Námskeiðin eru bræðrunum hvatning til að rækta sinn andlega mann og fylgja meginreglum Biblíunnar í samskiptum við hina dýrmætu sauði sem Jehóva hefur trúað þeim fyrir. – 1. Pét. 5:1-3.

Fyrsti nemendahópur í Þjónustuþjálfunarskólanum í Malaví.

Fyrsti nemendahópur í Þjónustuþjálfunarskólanum í Malaví árið 2007.

20. Hvers vegna gat Jesús sagt: „Guð mun kenna þeim öllum,“ og hvað ætlar þú að gera?

20 Konungurinn Messías hefur greinilega menntað fylgjendur sína vel. Öll þessi menntun kemur ofan frá: Jehóva menntaði son sinn og sonurinn fylgjendur sína. Þess vegna gat Jesús sagt: „Guð mun kenna þeim öllum.“ (Jóh. 6:45; Jes. 54:13) Við skulum vera staðráðin í að notfæra okkur sem best kennsluna sem konungurinn hefur látið okkur í té. Og höfum hugfast að meginmarkmið allrar þessarar menntunar er að styrkja okkar andlega mann þannig að við getum gert boðuninni full skil.

a Hvernig vitum við að faðirinn fræddi soninn um kennsluaðferðir? Jesús notaði dæmisögur og líkingar ríkulega þegar hann kenndi, og uppfyllti þar með spádóm sem var skráður öldum áður en hann fæddist. (Sálm. 78:2; Matt. 13:34, 35) Jehóva, höfundur þessa spádóms, ákvað greinilega löngu fyrir fram að sonur hans skyldi kenna með dæmisögum og líkingum. – 2. Tím. 3:16, 17.

b Nokkrum mánuðum síðar kvaddi Jesús til 70 til viðbótar og „sendi þá á undan sér, tvo og tvo,“ til að boða fagnaðarerindið. Hann kenndi þeim einnig áður en hann sendi þá af stað. – Lúk. 10:1-16.

c Sumir hafa setið Gíleaðskólann oftar en einu sinni.

d Nánari upplýsingar um áhrif trúboða frá Gíleað á starfið í heiminum er að finna í 23. kafla bókarinnar Jehovah’s Witnesses – Proclaimers of God’s Kingdom.

e Skólinn fyrir boðbera Guðsríkis er kominn í stað tveggja síðastnefndu skólanna.

f Ríkisþjónustuskólinn er haldinn á nokkurra ára fresti og námskeiðin eru mislöng. Allir öldungar sitja skólann og síðan 1984 hafa safnaðarþjónar einnig notið góðs af honum.

Hve raunverulegt er ríki Guðs í þínum augum?

  • Hvaða menntun fékk Jesús hjá föður sínum?

  • Hvernig hefur konungurinn kennt fylgjendum sínum og þjálfað þá í að boða fagnaðarerindið?

  • Hvernig hafa bræður í ábyrgðarstöðum fengið menntun til að geta sinnt störfum sínum sem best?

  • Hvernig geturðu sýnt að þú kunnir að meta menntunina sem konungurinn hefur látið í té?

SKÓLAR HANDA ÞJÓNUM GUÐSRÍKIS

LÍF OKKAR OG BOÐUN

Markmið: Að þjálfa boðbera fagnaðarerindisins í boðun og kennslu.

Lengd: Ótakmörkuð.

Staður: Ríkissalur safnaðarins.

Skráning: Allir geta skráð sig sem sækja samkomur reglulega, eru sammála kenningum Biblíunnar og fara eftir meginreglum hennar. Talaðu við umsjónarmann samkomunnar Líf okkar og boðun til að skrá þig.

Gagn: Sharon er skráð í skólann þótt hún sé lömuð vegna blandaðrar hreyfitaugungahrörnunar (ALS). Hún segir að á samkomunni um miðja viku hafi hún „lært að gera efnisleit og koma upplýsingum rökrétt á framfæri. Ég hef líka lært að hlusta á aðra og hugsa um andlegar þarfir þeirra, ekki bara mínar eigin.“

Arnie hefur verið í farandstarfi um árabil. Hann segir: „Á uppvaxtarárunum stamaði ég og átti erfitt með að horfa framan í fólk. Í þessum skóla hef ég fengið meira sjálfstraust. Jehóva hefur veitt mér þjálfun þannig að ég lærði rétta öndun og einbeitingu. Ég er mjög þakklátur fyrir að geta lofað Guð í söfnuðinum og í boðunarstarfinu.“

Ungur boðberi les biblíulesturinn í Boðunarskólanum.

SKÓLI FYRIR SAFNAÐARÖLDUNGAg

Markmið: Að hjálpa öldungum að sinna ábyrgðarstörfum í söfnuðinum og skilja betur hvað sé fólgið í því að tilbiðja Jehóva.

Lengd: Fimm dagar.

Staður: Ákveðinn af deildarskrifstofunni. Venjulega í nálægum ríkissal eða mótshöll.

Skráning: Öldungar fá boð frá deildarskrifstofunni.

Gagn: Bræður í 92. hópnum, sem sótti skólann í Patterson í New York í Bandaríkjunum, segja:

„Skólinn hefur nýst mér mjög vel. Hann hefur hjálpað mér að líta í eigin barm og sjá hvernig ég get annast sauði Jehóva.“

„Þessi þjálfun á eftir að gagnast mér alla ævi.“

BRAUTRYÐJENDASKÓLINN

Markmið: Að auðvelda brautryðjendum að ,fullna þjónustu sína‘. – 2. Tím. 4:5.

Lengd: Sex dagar.

Staður: Deildarnefndin ákveður stað, yfirleitt í nálægum ríkissal.

Skráning: Þeir sem hafa verið brautryðjendur í að minnsta kosti ár eru skráðir sjálfkrafa og fá boð frá farandhirðinum. Sumum sem hafa verið brautryðjendur lengi kann að vera boðið ef þeir hafa ekki setið skólann síðastliðin fimm ár.

Gagn: „Í skólanum lærði ég að takast á við erfiðleika sem tengjast boðuninni og öðrum sviðum lífsins,“ segir Lily. „Ég hef tekið miklum framförum í sjálfsnámi og í að kenna og nota Biblíuna. Ég er betur í stakk búin til að hjálpa öðrum, styðja starf öldunganna og stuðla að vexti safnaðarins.“

Brenda, sem hefur sótt skólann tvisvar, segir: „Ég fékk tækifæri til að vera algerlega upptekin af andlegum málum, styrkja samviskuna og einbeita mér að því að hjálpa öðrum. Jehóva er sannarlega örlátur.“

SKÓLI FYRIR NÝLIÐA Á BETEL

Markmið: Að stuðla að því að nýliðar á Betel verði farsælir í starfi.

Lengd: 45 mínútur á viku í 16 vikur.

Staður: Betel.

Skráning: Þeir sem tilheyra Betelfjölskyldunni eða starfa tímabundið á Betel í að minnsta kosti ár eru skráðir sjálfkrafa.

Gagn: Demetrius sat skólann upp úr 1980. Hann segir: „Í þessum skóla lærði ég betri námsvenjur og hann bjó mig undir framtíðarstarf á Betel. Kennararnir, námsskráin og hagnýt ráð sannfærðu mig um að Jehóva væri annt um mig og vildi hjálpa mér að vera farsæll í þjónustunni á Betel.“

SKÓLI FYRIR BOÐBERA GUÐSRÍKISh

Markmið: Að veita þeim sem þjóna Guði í fullu starfi (hjónum og einhleypum bræðrum og systrum) sérhæfða þjálfun til að geta komið að meira gagni í þjónustunni við Jehóva og söfnuð hans. Margir sem sitja þennan skóla eru sendir til að starfa þar sem þörfin er meiri innanlands. Þeir sem eru yngri en 50 ára gætu verið beðnir að starfa tímabundið sem sérbrautryðjendur til að hefja eða efla boðun á einangruðum svæðum.

Lengd: Tveir mánuðir.

Staður: Ákveðinn af deildarskrifstofunni. Yfirleitt í ríkissal eða mótshöll.

Systir í boðunarstarfinu.

Bræður og systur njóta góðs af kennslu sem veitt er á vegum safnaðarins.

Skráning: Ætlaður þeim sem þjóna Guði í fullu starfi og eru á aldrinum 23 til 65 ára. Þeir þurfa að vera við góða heilsu, vera í aðstöðu til að flytja þangað sem þörf er á fleiri boðberum og hafa hugarfarið: „Hér er ég. Send þú mig.“ (Jes. 6:8) Allir sem sækja skólann, bæði hjón og einhleypir bræður og systur, þurfa að hafa verið í fullu starfi samfellt í að minnsta kosti tvö ár. Hjón þurfa að hafa verið gift í minnst tvö ár. Bræður þurfa að hafa verið annaðhvort öldungar eða safnaðarþjónar samfellt í að minnsta kosti tvö ár. Ef skólinn er starfræktur á umsjónarsvæði deildarskrifstofunnar er haldinn fundur á umdæmismótinu til að veita þeim upplýsingar sem hafa áhuga á að sækja skólann.

Gagn: Margir hafa tjáð sig um gagnið af því að sækja Biblíuskólann fyrir einhleypa bræður og Biblíuskólann fyrir hjón. Árið 2013 ákvað hið stjórnandi ráð að sameina þessa tvo skóla og heitir hann Skóli fyrir boðbera Guðsríkis. Margir dyggir brautryðjendur til viðbótar eiga eftir að njóta góðs af þessu námskeiði, þeirra á meðal einhleypar systur.

BIBLÍUSKÓLINN GÍLEAÐ

Markmið: Að þjálfa nemendur fyrir farand-, trúboðs- eða Betelstarf. Menntunin hjálpar þeim að byggja upp og styrkja starfið á svæðinu og deildarskrifstofunni.

Lengd: Fimm mánuðir.

Staður: Fræðslumiðstöð Varðturnsins í Patterson í New York.

Nemendur í Gíleaðskólanum hlusta á kennarann sinn.

Kennslustund í Gíleaðskólanum í Patterson í New York.

Skráning: Deildarnefndin getur boðið hjónum og einhleypum bræðrum og systrum, sem eru sérbrautryðjendur, eru trúboðar en hafa ekki sótt skólann áður, eru í farandstarfi eða starfa á Betel, að sækja skólann. Umsækjendur verða að tala og skrifa ensku.

Gagn: Hjónin Lade og Monique frá Bandaríkjunum hafa starfað á trúboðssvæði sínu um árabil.

Lade segir: „Gíleaðskólinn bjó okkur undir að fara hvert sem er í heiminum, bretta upp ermarnar og vinna með okkar kæru trúsystkinum.“

Monique bætir við: „Ég nota það sem ég hef lært af orði Guðs og hef mikla ánægju af starfi mínu. Mér finnst þessi ánægja og gleði vera sönnun fyrir því að Jehóva elskar okkur.“

RÍKISÞJÓNUSTUSKÓLINN

Markmið: Að þjálfa farandumsjónarmenn, öldunga og safnaðarþjóna í að sinna umsjónar- og ábyrgðarstörfum innan safnaðarins. (Post. 20:28) Rætt er um algengar aðstæður fólks, ríkjandi stefnur og aðkallandi þarfir safnaðanna. Skólinn er haldinn á nokkurra ára fresti að ákvörðun hins stjórnandi ráðs.

Lengd: Á undanförnum árum hefur skólinn verið mislangur.

Staður: Yfirleitt í nálægum ríkissal eða mótshöll.

Skráning: Öldungar og safnaðarþjónar fá boð frá farandhirðinum. Deildarnefndin býður farandumsjónarmönnum að sækja skólann.

Gagn: „Þó að námsefnið sé kjarnmikið og hnitmiðað endurnærir það öldunga svo að þeir viðhaldi gleðinni og geti verið hugdjarfir í þjónustunni við Jehóva. Hvort sem öldungar hafa þjónað um skamman eða langan tíma læra þeir að vera góðir hirðar og vinna saman einhuga.“ – Quinn.

„Það var gott jafnvægi á kennslunni. Við vorum hvattir til að meta andleg verðmæti, varaðir við hættum og fengum góðar tillögur um hvernig við getum annast hjörðina.“ – Michael.

SKÓLI FYRIR FARANDHIRÐA OG EIGINKONUR ÞEIRRAi

Markmið: Að stuðla að árangursríkara starfi farandhirða í söfnuðunum og hvetja þá til að gæta hjarðarinnar vel og „leggja hart að sér við boðun og fræðslu“. – 1. Tím. 5:17; 1. Pét. 5:2, 3.

Lengd: Einn mánuður.

Staður: Ákveðinn af deildarskrifstofunni.

Skráning: Farandhirðar og eiginkonur þeirra fá boð frá deildarskrifstofunni.

Gagn: „Við gerðum okkur enn betur grein fyrir hvernig Jesús stýrir söfnuðinum. Við skildum líka hve mikilvægt er að uppörva trúsystkini sem við þjónum og styrkja eininguna innan safnaðanna. Í skólanum var okkur innprentað að þegar farandumsjónarmaður veitir ráð eða jafnvel leiðréttir trúsystkini er aðalmarkmiðið að sýna þeim fram á að Jehóva elskar þau.“ – Joel og Connie sem voru í fyrsta nemendahópi skólans árið 1999.

SKÓLI FYRIR BRÆÐUR Í DEILDARNEFNDUM OG EIGINKONUR ÞEIRRA

Markmið: Að fræða þá sem sitja í deildarnefndum til að sinna betur umsjónarstörfum á Betelheimilum, sinna málum sem varða söfnuðina og hafa umsjón með farandsvæðum. – Lúk. 12:48b.

Lengd: Tveir mánuðir.

Staður: Fræðslumiðstöð Varðturnsins í Patterson í New York.

Skráning: Þjónustunefnd hins stjórnandi ráðs býður bræðrum í deildar- og landsnefndum ásamt eiginkonum þeirra.

Gagn: Lowell og Cara voru í 25. nemendahópi skólans. Þau starfa í Nígeríu.

„Ég var minntur á að óháð því hve mikið er að gera og hvaða verki ég þarf að sinna er nauðsynlegt að vinna í samræmi við vilja Jehóva til að geta þóknast honum,“ segir Lowell.

Cara minnist á eitt sem hún lærði í skólanum: „Ef ég get ekki útskýrt eitthvað í einföldu máli þarf ég að rannsaka það betur áður en ég reyni að kenna öðrum það.“

g Þessi skóli er ekki starfræktur enn þá í öllum löndum heims.

h Þessi skóli er ekki starfræktur enn þá í öllum löndum heims.

i Þessi skóli er ekki starfræktur enn þá í öllum löndum heims.

    Íslensk rit (1985-2025)
    Útskrá
    Innskrá
    • íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2025 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila