Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • Milljónir sem dánar eru munu lifa á ný
    Varðturninn – 1990 | 1. ágúst
    • Viðbrögð Jesú við dauða Lasarusar sýna okkur að sonur Guðs var mjög hluttekningarsamur. Þær djúpu tilfinningar hans, sem birtust við þetta tækifæri, gefa skýrt til kynna hina brennandi löngun hans til að reisa upp dána. Við lesum: „María kom þangað, sem Jesús var, og er hún sá hann, féll hún honum til fóta og sagði við hann: ‚Herra, ef þú hefðir verið hér, væri bróðir minn ekki dáinn.‘ Þegar Jesús sá hana gráta og Gyðingana gráta, sem með henni komu, komst hann við í anda og varð hrærður mjög og sagði: ‚Hvar hafið þér lagt hann?‘ Þeir sögðu: ‚Herra, kom þú og sjá.‘ Þá grét Jesús. Gyðingarnir sögðu: ‚Sjá, hversu hann hefur elskað hann!‘“ — Jóhannes 11:32-36.

  • Milljónir sem dánar eru munu lifa á ný
    Varðturninn – 1990 | 1. ágúst
    • Orðið, sem þýtt er „hrærður,“ er komið af gríska orðinu tarasso er lýsir geðshræringu. Að sögn ritsins The New Thayer’s Greek-English Lexicon of the New Testament merkir það að „valda innra uppnámi, . . . að valda mikilli kvöl eða sorg.“ Orðið „grét“ er þýðing grísku sagnarinnar dakryo sem merkir að „tárfella, gráta í hljóði.“ Það er ekki hið sama og ‚grátur‘ Maríu og Gyðinganna sem með henni voru og sagt er frá í Jóhannesi 11:33. Orðið, sem þar er notað á grískunni (komið af klaio), merkir að gráta upphátt.c

      Jesús komst því í mikla geðshræringu vegna dauða hins ástkæra vinar síns, Lasarusar, og við það að sjá systur Lasarusar gráta. Svo mikil var geðshræring hans að augu hans flóðu í tárum. Það er eftirtektarvert að Jesús hafði, þegar hér var komið sögu, reist tvo einstaklinga upp frá dauðum og ætlaði sér einnig að reisa Lasarus upp. (Jóhannes 11:11, 23, 25) Eigi að síður „grét“ hann. Það er því ekki eins og vanaverk fyrir Jesú að vekja menn upp til lífs. Hinar sterku og djúpu tilfinningar hans, sem birtust við þetta tækifæri, bera glögglega vitni um brennandi löngun hans til að vinna bug á því tjóni sem dauðinn er valdur að.

Íslensk rit (1985-2025)
Útskrá
Innskrá
  • íslenska
  • Deila
  • Stillingar
  • Copyright © 2025 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
  • Notkunarskilmálar
  • Persónuverndarstefna
  • Persónuverndarstillingar
  • JW.ORG
  • Innskrá
Deila