Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • Hvað einkennir sannkristna menn?
    Von um bjarta framtíð – biblíunámskeið
    • 3. Við hvað eru sannkristnir menn uppteknir?

      Jesús fól lærisveinum sínum verkefni. „Hann sendi þá af stað til að boða ríki Guðs.“ (Lúkas 9:2) Frumkristnir menn boðuðu ríkið ekki bara á tilbeiðslustöðum sínum. Þeir boðuðu það opinberlega og hús úr húsi. (Lestu Postulasöguna 5:42; 17:17.) Sannkristnir menn nú á dögum boða einnig sannleika Biblíunnar hvar sem fólk er að finna. Þeir elska náungann og eru því fúsir til að nota tíma sinn og krafta í að segja frá hughreystandi vonarboðskap Biblíunnar. – Markús 12:31.

  • Hvernig er fagnaðarboðskapurinn boðaður?
    Von um bjarta framtíð – biblíunámskeið
    • Hvernig er fagnaðarboðskapurinn boðaður?

      Bráðlega mun Jehóva nota ríki sitt til að fjarlægja öll vandamál okkar. Það eru allt of góðar fréttir til að halda út af fyrir sig. Jesús vildi að fylgjendur sínir segðu öllum frá þeim. (Matteus 28:19, 20) Hvernig hafa Vottar Jehóva brugðist við boði Jesú?

      1. Hvernig er Matteus 24:14 að uppfyllast núna?

      Jesús sagði: „Fagnaðarboðskapurinn um ríkið verður boðaður um alla jörðina.“ (Matteus 24:14) Vottar Jehóva taka glaðir þátt í þessu mikilvæga starfi. Við boðum fagnaðarboðskapinn um allan heim á meira en 1.000 tungumálum. Þetta risastóra verkefni krefst gríðarlegrar vinnu og skipulagningar. Það væri ekki gerlegt án hjálpar Jehóva.

      2. Hvað leggjum við á okkur til að boða fólki trúna?

      Við boðum trúna hvar sem við náum í fólk. Við gerum það „hús úr húsi“, rétt eins og kristnir menn á fyrstu öld. (Postulasagan 5:42) Þessi markvissa aðferð gerir okkur kleift að ná til milljóna manna á hverju ári. Við boðum líka trúna á almannafæri, því að fólk er ekki alltaf heima. Við leitum allra leiða til að segja öðrum frá Jehóva og fyrirætlunum hans.

      3. Hverjir eiga að boða fagnaðarboðskapinn?

      Allir sannkristnir menn eiga að boða öðrum fagnaðarboðskapinn. Við tökum ábyrgð okkar alvarlega. Við notum eins mikinn tíma í boðunina og aðstæður okkar leyfa vegna þess að við gerum okkur grein fyrir að líf fólks er í húfi. (Lestu 1. Tímóteusarbréf 4:16.) Við fáum ekki borgað fyrir þetta starf því að í Biblíunni segir: „Gefins hafið þið fengið, gefins skuluð þið láta í té.“ (Matteus 10:7, 8) Það taka ekki allir við boðskap okkar. En við höldum áfram að boða trúna vegna þess að boðunin er hluti af tilbeiðslu okkar og hún gleður Jehóva.

      KAFAÐU DÝPRA

      Lærðu meira um það sem vottar Jehóva leggja á sig til að boða trúna um allan heim og hvernig Jehóva hjálpar okkur til þess.

      A. Tveir vottar Jehóva boða manni trúna í grösugri hlíð í Kosta Ríka. B. Tvö pör votta Jehóva boða fiskimönnum á bryggju í Bandaríkjunum trúna. C. Tveir vottar Jehóva boða manni trúna í sveitaþorpi í Benín. D. Vottur Jehóva boðar konu trúna á fljótandi markaði í Taílandi. E. Tveir vottar Jehóva boða konu trúna fyrir framan stóra steinpeninga í Yap. F. Tveir vottar Jehóva boða konu trúna á snævi þakinni gangstétt meðfram skurði í Svíþjóð.

      Trúin boðuð víðs vegar um heiminn: (A) Kosta Ríka, (B) Bandaríkin, (C) Benín, (D) Taíland, (E) Yap, (F) Svíþjóð.

      4. Við leggjum hart að okkur til að ná til allra

      Vottar Jehóva leggja mikið á sig til að boða fólki alls staðar fagnaðarboðskapinn. Spilið MYNDBANDIÐ og ræðið síðan eftirfarandi spurningu:

      MYNDBAND: Trúin boðuð við ‚endimörk jarðar‘ (7:38)

      • Hvað finnst þér áhugaverðast við það sem vottar Jehóva leggja á sig til að boða trúna?

      Lesið Matteus 22:39 og Rómverjabréfið 10:13–15 og ræðið síðan eftirfarandi spurningar:

      • Hvernig er boðunin merki um að við elskum náungann?

      • Hvað finnst Jehóva um þá sem boða fagnaðarboðskapinn? – Sjá 15. vers.

      5. Við erum samverkamenn Guðs

      Margar reynslusögur sýna að Jehóva stýrir boðun okkar. Tökum sem dæmi trúbróður okkar á Nýja-Sjálandi sem heitir Paul. Einn eftirmiðdag hitti hann konu í boðuninni hús úr húsi. Þennan sama morgun hafði konan beðið til Guðs og notað nafnið Jehóva. Hún bað hann um að einhver kæmi til að hjálpa henni að kynnast honum. „Þrem klukkustundum síðar bankaði ég upp á hjá henni,“ segir Paul.

      Lesið 1. Korintubréf 3:9 og ræðið síðan eftirfarandi spurningu:

      • Hvernig sýna reynslusögur eins og þessi frá Nýja-Sjálandi að Jehóva stýrir boðuninni?

      Lesið Postulasöguna 1:8 og ræðið síðan eftirfarandi spurningu:

      • Hvers vegna þurfum við hjálp Jehóva til að gera þjónustu okkar góð skil?

      Vissir þú?

      Á hverri samkomu í miðri viku fáum við þjálfun í að boða trúna. Hvað finnst þér um þessa þjálfun, ef þú hefur komið á slíka samkomu?

      Tveir vottar Jehóva sýna á safnaðarsamkomu hvernig hægt er að boða fagnaðarboðskapinn.

      6. Við hlýðum boði Guðs um að boða trúna

      Á fyrstu öld reyndu andstæðingar að stöðva boðun fylgjenda Jesú. Frumkristnir menn ‚vörðu fagnaðarboðskapinn og staðfestu með lögum réttinn til að boða hann‘. (Filippíbréfið 1:7) Vottar Jehóva gera það sama nú á dögum.a

      Spilið MYNDBANDIÐ.

      MYNDBAND: Að verja fagnaðarboðskapinn með lögum (2:28)

      Lesið Postulasöguna 5:27–42 og ræðið síðan eftirfarandi spurningu:

      • Hvers vegna hættum við ekki að boða trúna? – Sjá 29., 38. og 39. vers.

      EINHVER GÆTI SPURT: „Af hverju fara vottar Jehóva hús úr húsi?“

      • Hvernig myndir þú svara því?

      SAMANTEKT

      Jesús gaf fylgjendum sínum fyrirmæli um að boða öllum þjóðum fagnaðarboðskapinn. Jehóva hjálpar þjónum sínum að vinna þetta verk.

      Upprifjun

      • Hvernig er fagnaðarboðskapurinn boðaður um allan heim?

      • Hvernig er boðunin merki um að við elskum náungann?

      • Heldur þú að boðunin geti veitt okkur ánægju? Hvers vegna?

      Markmið

      KANNAÐU

      Sjáðu hvernig Vottar Jehóva boða trúna í stórborgum.

      Sérstök boðun meðal almennings í París (5:11)

      Hvernig hafa Vottar Jehóva náð til flóttamanna?

      Andlegum þorsta flóttamanna svalað (5:59)

      Hlustaðu á systur segja frá því hve ánægjulegt líf hennar hefur verið sem boðberi í fullu starfi.

      Ég valdi besta ævistarfið (6:29)

      Lestu um markverða sigra sem hafa unnist fyrir dómstólum og verið boðun fagnaðarboðskaparins til eflingar.

      „Boðberar Guðsríkis verja rétt sinn fyrir dómstólum“ (Ríki Guðs stjórnar, kafli 13)

      a Guð hefur veitt okkur umboð til að boða trúna. Þess vegna þurfa vottar Jehóva ekki leyfi frá mannlegum yfirvöldum til að boða fagnaðarboðskapinn.

Íslensk rit (1985-2025)
Útskrá
Innskrá
  • íslenska
  • Deila
  • Stillingar
  • Copyright © 2025 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
  • Notkunarskilmálar
  • Persónuverndarstefna
  • Persónuverndarstillingar
  • JW.ORG
  • Innskrá
Deila