Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • Hver er Guð?
    Von um bjarta framtíð – biblíunámskeið
    • 5. Jehóva vill að þú eignist náið samband við sig

      Kona frá Kambódíu, sem heitir Soten, varð hamingjusamari en nokkru sinni fyrr eftir að hún kynntist nafni Guðs. Spilið MYNDBANDIÐ og ræðið síðan eftirfarandi spurningu:

      MYNDBAND: Leit mín að hinum sanna Guði (8:18)

      Myndir: Úr myndbandinu ‚Leit mín að hinum sanna Guði‘. 1. Soten situr undir tré úti í skógi, horfir til himins og biður til hins sanna Guðs. 2. Herold útskýrir fyrir Soten að Guð heiti Jehóva.
      • Hvaða áhrif hafði það á Soten að kynnast nafni Guðs?

      Maður veit yfirleitt hvað fólk heitir áður en maður verður vinur þess. Lesið Jakobsbréfið 4:8a og ræðið síðan eftirfarandi spurningar:

      • Hvað býður Jehóva þér að gera?

      • Hvernig getur það gert þig nánari Guði að þekkja nafn hans og nota það?

  • Þú getur verið vinur Jehóva
    Von um bjarta framtíð – biblíunámskeið
    • Þú getur verið vinur Jehóva

      Jehóva vill að þú kynnist sér betur. Hann vonar að því betur sem þú kynnist eiginleikum hans, framkomu og fyrirætlun því meira langi þig til að vera vinur hans. Heldurðu að þú getir í raun verið vinur Guðs? (Lestu Sálm 25:14.) Hvernig geturðu orðið vinur hans? Biblían svarar þessum spurningum og sýnir hvers vegna vinátta við Jehóva er mikilvægasta samband sem þú getur átt.

      1. Hvað býður Jehóva þér að gera?

      „Nálgist Guð og þá mun hann nálgast ykkur.“ (Jakobsbréfið 4:8) Hvað merkir það? Jehóva er að bjóða þér vináttu sína. Sumir eiga erfitt með að ímynda sér að geta verið vinur einhvers sem þeir geta ekki séð, hvað þá að vera vinur Guðs. En í orði sínu, Biblíunni, segir Jehóva okkur allt sem við þurfum að vita um hann til að nálgast hann. Vinátta okkar við Jehóva styrkist þegar við lesum boðskap hans til okkar í Biblíunni, jafnvel þó að við höfum aldrei séð hann.

      2. Hvers vegna er Jehóva besti vinur sem þú getur átt?

      Jehóva elskar þig meira en nokkur annar. Hann vill að þú njótir hamingju og að þú leitir til hans hvenær sem þú þarft á hjálp að halda. Þú getur ‚varpað öllum áhyggjum þínum á hann því að hann ber umhyggju fyrir þér‘. (1. Pétursbréf 5:7) Jehóva er alltaf tilbúinn að styðja, hugga og hlusta á vini sína. – Lestu Sálm 94:18, 19.

      3. Hvers ætlast Jehóva til af vinum sínum?

      Jehóva elskar alla menn en „er náinn vinur hinna réttlátu“. (Orðskviðirnir 3:32) Jehóva ætlast til að vinir hans reyni að gera það sem er gott í hans augum og forðast það sem hann telur slæmt. Sumir halda kannski að þeir geti aldrei lifað í samræmi við staðla Jehóva um hvað sé gott og slæmt. En Jehóva er skilningsríkur. Hann tekur á móti öllum sem elska hann í raun og veru og gera sitt besta til að þóknast honum. – Sálmur 147:11; Postulasagan 10:34, 35.

      KAFAÐU DÝPRA

      Lærðu meira um hvernig þú getur orðið vinur Jehóva og hvers vegna hann er besti vinur sem þú getur átt.

      4. Abraham var vinur Jehóva

      Frásaga Biblíunnar af Abraham (einnig kallaður Abram) hjálpar okkur að skilja hvað það þýðir að vera vinur Guðs. Lesið um Abraham í 1. Mósebók 12:1–4. Ræðið síðan eftirfarandi spurningar:

      • Hvað bað Jehóva Abraham að gera?

      • Hverju lofaði Jehóva honum?

      • Hvernig brást Abraham við fyrirmælum Jehóva?

      5. Það sem Jehóva biður vini sína um

      Við væntum yfirleitt einhvers af vinum okkar.

      • Hvernig vilt þú að vinir þínir komi fram við þig?

      Lesið 1. Jóhannesarbréf 5:3 og ræðið síðan eftirfarandi spurningu:

      • Hvers ætlast Jehóva til af vinum sínum?

      Við getum þurft að breyta skapgerð okkar og hegðun til að hlýða Jehóva. Lesið Jesaja 48:17, 18 og ræðið síðan eftirfarandi spurningu:

      • Hvers vegna biður Jehóva vini sína um að gera breytingar?

      Smiður réttir vinnufélaga öryggishjálm.

      Góður vinur minnir okkur á það sem er okkur til gagns og verndar. Jehóva gerir það sama fyrir vini sína.

      6. Það sem Jehóva gerir fyrir vini sína

      Jehóva hjálpar vinum sínum að takast á við erfiðleika. Spilið MYNDBANDIÐ og ræðið síðan eftirfarandi spurningu:

      MYNDBAND: Jehóva hefur hjálpað mér svo mikið (3:20)

      • Hvernig hefur Jehóva hjálpað konunni í myndbandinu að takast á við neikvæðar hugsanir og tilfinningar?

      Lesið Jesaja 41:10, 13 og ræðið síðan eftirfarandi spurningar:

      • Hvað lofar Jehóva að gera fyrir alla vini sína?

      • Heldur þú að Jehóva geti verið góður vinur? Hvers vegna?

      Klippimynd: Nánir vinir hjálpast að. 1. Maður hjálpar öðrum manni að bera stórt borð. 2. Konur ræða saman í trúnaði. 3. Maður styður við mann með hækjur.

      Nánir vinir hjálpa þér þegar þú þarft á því að halda. Jehóva hjálpar þér líka.

      7. Við þurfum að eiga samskipti við Jehóva til að geta verið vinir hans

      Samskipti styrkja vináttu. Lesið Sálm 86:6, 11 og ræðið síðan eftirfarandi spurningar:

      • Hvernig getum við talað við Jehóva?

      • Hvernig talar Jehóva við okkur?

      Klippimynd: 1. Kona á bæn. Ör fyrir ofan hana beinist upp. 2. Kona les í Biblíunni. Ör fyrir ofan hana beinist niður.

      Við tölum við Jehóva í bæn og hann talar við okkur í Biblíunni.

      SUMIR SEGJA: „Það er ekki hægt að vera náinn Guði.“

      • Hvaða biblíuvers myndir þú nota til að sýna fram á að við getum verið vinir Jehóva?

      SAMANTEKT

      Jehóva vill vera vinur þinn og hann hjálpar þér að nálgast sig.

      Upprifjun

      • Hvernig hjálpar Jehóva vinum sínum?

      • Hvers vegna segir Jehóva vinum sínum að gera breytingar?

      • Finnst þér Jehóva ætlast til of mikils af vinum sínum? Hvers vegna?

      Markmið

      KANNAÐU

      Hvaða áhrif getur vinátta við Guð haft á líf þitt?

      „Jehóva er Guð sem er þess virði að þekkja“ (Grein úr Varðturninum)

      Lestu um hvernig þú getur ræktað vináttusamband við Guð.

      „Hvernig get ég orðið vinur Guðs?“ (Spurningar unga fólksins – svör sem duga, 2. bindi, kafli 35)

      Kynntu þér hvers vegna konu nokkurri finnst það hafa bjargað lífi sínu að eignast vináttu við Jehóva.

      „Mig langaði ekki til að deyja“ (Varðturninn nr. 1 2017)

      Hlustaðu á unglinga segja hvað þeim finnst um Jehóva.

      Hvað felur það í sér að vera vinur Jehóva? (1:46)

Íslensk rit (1985-2025)
Útskrá
Innskrá
  • íslenska
  • Deila
  • Stillingar
  • Copyright © 2025 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
  • Notkunarskilmálar
  • Persónuverndarstefna
  • Persónuverndarstillingar
  • JW.ORG
  • Innskrá
Deila