Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • g 10.10 bls. 8-9
  • Hverju trúa vottar Jehóva?

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Hverju trúa vottar Jehóva?
  • Vaknið! – 2010
  • Svipað efni
  • Hverju trúa vottar Jehóva?
    Hverju trúa vottar Jehóva?
  • Hverju trúa vottar Jehóva?
    Spurningar og svör um Votta Jehóva
  • Hverjir eru þeir?
    Vottar Jehóva — Hverjir eru þeir? Hverju trúa þeir?
  • Guð – hver er hann?
    Þú getur lifað að eilífu í paradís á jörð
Sjá meira
Vaknið! – 2010
g 10.10 bls. 8-9

Hverju trúa vottar Jehóva?

Það er ekkert leyndarmál hverju vottar Jehóva trúa enda eru rit þeirra fáanleg á hundruðum tungumála. Hér á eftir er yfirlit yfir nokkrar af helstu kenningum þeirra.

1. Biblían.

Vottarnir trúa því að ,sérhver ritning sé innblásin af Guði‘. (2. Tímóteusarbréf 3:16) Jason D. BeDuhn er dósent í trúarbragðafræðum. Hann segir: „[Vottar Jehóva byggðu] trúarkerfi sitt og trúariðkun á Biblíunni eins og hún er, án þess að ákveða fyrir fram hvað væri þar að finna.“ Vottarnir byggja trúarskoðanir sínar á Biblíunni en túlka ekki Biblíuna eftir eigin hentisemi. En þeir viðurkenna líka að ekki skuli taka allt í Biblíunni bókstaflega. Dagarnir sjö í sköpunarsögunni eru til dæmis táknrænir og eiga við löng tímabil. − 1. Mósebók 1:31; 2:4.

2. Skaparinn.

Hinn sanni Guð hefur gefið sér nafn sem aðgreinir hann frá falsguðum. Nafn hans er Jehóva (í íslenskum biblíum frá síðustu öld og þessari er notaður rithátturinn Jahve).a (2. Mósebók 6:3, neðanmáls) Hebresk mynd þessa nafns kemur fyrir um 7.000 sinnum í frumtexta Biblíunnar. Jesús lagði áherslu á þetta nafn í bæninni sem er kölluð faðirvorið. Hann bað: „Helgist þitt nafn.“ (Matteus 6:9) Guð krefst óskiptrar hollustu og verðskuldar hana. Þess vegna nota vottar Jehóva ekki helgimyndir eða líkneski við tilbeiðsluna. − 1. Jóhannesarbréf 5:21.

3. Jesús Kristur.

Hann er frelsarinn, „sonur Guðs“ og „frumburður allrar sköpunar“. (Jóhannes 1:34; Kólossubréfið 1:15; Postulasagan 5:31) Hann er sjálfur skapaður og er ekki hluti af þríeinum guði eins og margar kirkjudeildir kenna. Jesús sagði: „Faðirinn er mér meiri.“ (Jóhannes 14:28) Jesús var á himnum áður en hann kom til jarðar og eftir fórnardauða sinn og upprisu sneri hann aftur til himna. „Enginn kemur til föðurins nema fyrir [hann].“ − Jóhannes 14:6.

4. Ríki Guðs.

Það er raunveruleg stjórn á himnum. Guðsríki á sér konung − Jesú Krist − og hann hefur 144.000 meðstjórnendur sem ,leystir hafa verið frá jörðunni‘. (Opinberunarbókin 5:9, 10; 14:1, 3, 4; Daníel 2:44; 7:13, 14) Saman munu þeir ríkja yfir jörðinni, hún verður hreinsuð af allri illsku og milljónir guðhræddra manna munu byggja hana. − Orðskviðirnir 2:21, 22.

5. Jörðin.

Í Prédikaranum 1:4 segir: „Jörðin stendur að eilífu.“ Þegar hinum illu hefur verið útrýmt verður jörðin gerð að paradís og réttlátt mannkyn býr þar að eilífu. (Sálmur 37:10, 11, 29) Bæn Jesú: „Verði þinn vilji, svo á jörðu sem á himni,“ hefur þá verið svarað. − Matteus 6:10.

6. Spádómar Biblíunnar.

,Guð lýgur aldrei.‘ (Títusarbréfið 1:2) Það sem hann segir fyrir rætist alltaf, þar á meðal spádómar Biblíunnar um endalok núverandi heims. (Jesaja 55:11; Matteus 24:3-14) Hverjir komast lífs af í eyðingunni sem er fram undan? „Sá sem gerir Guðs vilja varir að eilífu,“ stendur í 1. Jóhannesarbréfi 2:17.

7. Yfirvöld.

„Gjaldið keisaranum það sem keisarans er og Guði það sem Guðs er,“ sagði Jesús. (Markús 12:17) Þess vegna hlýða vottar Jehóva landslögum svo framarlega sem þau stangast ekki á við lög Guðs. − Postulasagan 5:29; Rómverjabréfið 13:1-3.

8. Boðunin.

Jesús sagði að „fagnaðarerindið um ríkið“ yrði boðað um allan heim áður en núverandi heimur liði undir lok. (Matteus 24:14) Vottar Jehóva telja það heiður að taka þátt í þessu björgunarstarfi. Fólki er auðvitað í sjálfsvald sett hvort það vill hlusta. Í Biblíunni stendur: „Hver sem vill fær ókeypis lífsins vatn.“ − Opinberunarbókin 22:17.

9. Skírn.

Vottar Jehóva skíra aðeins þá sem langar til að þjóna Guði sem vottar hans eftir að hafa kynnt sér Biblíuna rækilega. (Hebreabréfið 12:1) Þeir hafa þá vígt sig Guði og tákna vígsluna með niðurdýfingarskírn. − Matteus 3:13, 16; 28:19.

10. Skipting í lærða og leikmenn.

„Þér öll [eruð] bræður og systur,“ sagði Jesús við fylgjendur sína. (Matteus 23:8) Hjá hinum frumkristnu, þar á meðal biblíuriturunum, var engin prestastétt. Vottar Jehóva fylgja þessari fyrirmynd úr Biblíunni.

a Vottar Jehóva bjuggu ekki til nafnið „Jehóva“. Fyrr á öldum var nafn Guðs þýtt þannig úr frummálum Biblíunnar á þó nokkur tungumál, þar á meðal ensku, þýsku og íslensku. Því miður hafa sumir biblíuþýðendur skipt nafni Guðs út fyrir titla eins og „Guð“ eða „Drottinn“. Með því sýna þeir höfundi Biblíunnar megna vanvirðingu.

    Íslensk rit (1985-2025)
    Útskrá
    Innskrá
    • íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2025 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila