Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • g17 Nr. 6 bls. 3
  • Er heimurinn farinn úr böndunum eða ekki?

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Er heimurinn farinn úr böndunum eða ekki?
  • Vaknið! – 2017
  • Svipað efni
  • Vísindamenn færa dómsdagsklukkuna fram – hvað segir Biblían?
    Fleiri viðfangsefni
  • Kjarnorkuváin — er hún liðin hjá?
    Vaknið! – 1999
  • Er að koma heimsendir?
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (almenn útgáfa) – 2021
  • Lifum við á tíma endalokanna?
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1987
Sjá meira
Vaknið! – 2017
g17 Nr. 6 bls. 3
Dómsdagsklukkan

FORSÍÐUEFNI | ER HEIMURINN FARINN ÚR BÖNDUNUM?

Er heimurinn farinn úr böndunum eða ekki?

ÁRIÐ 2017 hófst á dapurlegri yfirlýsingu frá vísindasamfélaginu. Í janúar lýsti hópur vísindamanna því yfir að heimurinn hefði nálgast verstu hörmungar mannkynssögunnar. Vísindamenn færðu mínútuvísinn á dómsdagsklukkunni svokölluðu fram um 30 sekúndur til að sýna að hörmungar á heimsvísu eru mjög nærri. Núna vantar klukkuna ekki nema tvær og hálfa mínútu í miðnætti sem er nær miðnætti en í meira en 60 ár.

Árið 2018 ætla vísindamenn aftur að meta hversu nálægt við erum heimsendi. Mun dómsdagsklukkan enn gefa merki um að verstu hörmungar mannkyns vofi yfir? Hvað heldur þú? Er heimurinn farinn úr böndunum? Kannski finnst þér erfitt að svara því. Sérfræðingar eru jafnvel ekki allir sammála um málið. Ekki telja allir að dómsdagur sé óumflýjanlegur.

Milljónir manna líta framtíðina reyndar björtum augum. Þeir telja sig hafa sannanir fyrir því að jörðin verði byggileg að eilífu og að lífsgæði okkar muni batna. Er það trúverðugt? Er heimurinn farinn úr böndunum eða ekki?

„Dómsdagsklukkan er þekkt um allan heim en hún sýnir hversu nálægt við erum því að eyða siðmenningu okkar með eigin tækni. Hættan stafar fyrst og fremst af kjarnavopnum en einnig af tækni sem breytir loftslaginu, líftækninýjungum og nettækni sem gætu valdið óbætanlegum skaða fyrir jörðina og lífshætti okkar – sem menn valda annaðhvort af ásettu ráði, vegna mistaka í útreikningi eða fyrir slysni.“ – Bulletin of the Atomic Scientists.

    Íslensk rit (1985-2025)
    Útskrá
    Innskrá
    • íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2025 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila