Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • g17 Nr. 6 bls. 10-11
  • Heimsókn til Nýja-Sjálands

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Heimsókn til Nýja-Sjálands
  • Vaknið! – 2017
Vaknið! – 2017
g17 Nr. 6 bls. 10-11
Milford Sound á Nýja-Sjálandi.

Milford Soundd

LÖND OG ÞJÓÐIR

Heimsókn til Nýja-Sjálands

Nýja-Sjáland á heimskorti.

TALIÐ er að Maóríar hafi sest að á Nýja-Sjálandi fyrir um 800 árum. Landið var frábrugðið hitabeltiseyjunum í Pólýnesíu þaðan sem þeir sigldu. Þetta var land fjalla og jökla með snjó og hverum. Um fimm öldum síðar komu landnemar af öðrum kynþætti alla leið frá Evrópu. Nú á dögum halda flestir Nýsjálendingar í pólýnesískar og engilsaxneskar hefðir. Næstum níu af hverjum tíu landsmönnum eru borgarbúar. Wellington hefur þá sérstöðu að vera syðsta höfuðborg heims.

Leirhver á Norðurey á Nýja-Sjálandi.

Leirhver á Norðurey.

Nýja-Sjáland skartar fjölbreyttri og stórfenglegri náttúrufegurð. Það er því engin furða að það dragi til sín nærri þrjár milljónir ferðamanna á ári þó að landið sé úr alfaraleið.

Silfurtrjáburknar

Silfurtrjáburkninn getur náð meira en 10 metra hæð.

Ófleygi fuglinn takahe.

Allt fram til 1948 var ófleygi fuglinn takahe talinn útdauður.

Á Nýja-Sjálandi er að finna fjölda óvenjulegra dýrategunda. Sem dæmi má nefna að hvergi í heiminum er að finna fleiri tegundir ófleygra fugla. Þar eru einnig heimkynni ranakollsins, skriðdýrs sem líkist eðlu og getur orðið hundrað ára gamalt. Einu upprunnalegu spendýrin þar eru nokkrar tegundir leðurblaka og stór sjávarspendýr svo sem hvalir og höfrungar.

Vottar Jehóva hafa boðað trúna á Nýja-Sjálandi í næstum 120 ár. Þeir fræða fólk um Biblíuna á að minnsta kosti 19 tungumálum, þar á meðal pólýnesísku málunum níveysku, rarótongösku, samósku og tongösku.

Maóríar syngja.

Maóríar syngja og dansa í þjóðbúningum.

VISSIR ÞÚ?

Nýja-Sjáland er nefnt eftir Zeeland í Hollandi. Á maórísku heitir landið Aotearoa sem þýðir „land hins langa hvíta skýs“.

Flestir Nýsjálendingar tala ensku en maóríska, tungumál frumbyggja, hefur þó náð útbreiðslu á ný og er nú kennt í skólum. Opinbert vefsetur Votta Jehóva, jw.org, er meðal annars á maórísku.

  • ÍBÚAFJÖLDI: 4,7 MILLJÓNIR

  • HÖFUÐBORG: WELLINGTON

  • LANDSLAG: Á NORÐUREY ERU VIRK ELDFJÖLL OG HVERIR. Á SUÐUREY ERU NOKKUR ÞÚSUND JÖKLAR.

    Íslensk rit (1985-2025)
    Útskrá
    Innskrá
    • íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2025 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila