AÐ TAKAST Á VIÐ HÆKKANDI VERÐLAG
Vertu örlátur
Ef þú átt erfitt með að takast á við hækkandi verðlag finnst þér þú kannski ekki geta verið örlátur við aðra. En þú gætir komist að því að örlæti hjálpar þér að takast á við efnahagserfiðleika. Þú getur verið bæði sparsamur og örlátur.
HVERS VEGNA ER ÞAÐ MIKILVÆGT?
Að vera örlátur veitir manni gleði og eykur sjálfsvirðinguna – þó að maður geti ekki gefið mikið. Rannsóknir sýna reyndar að það getur verið gott fyrir líkamlega og andlega heilsu að vera gjafmildur. Það getur dregið úr kvíða og streitu, lækkað blóðþrýsting og jafnvel slegið á verki. Það getur líka bætt svefninn.
Ef við gefum, efnislega eða á annan hátt, getur okkur fundist auðveldara að þiggja hjálp annarra þegar við þurfum á því að halda. Howard, sem býr á Englandi, segir: „Við hjónin leitum leiða til að sýna öðrum örlæti og hjálpsemi og þess vegna finnst okkur við ekki vera eins mikil byrði þegar við þurfum á hjálp að halda.“ Þeir sem eru örlátir í raun og veru ætlast að sjálfsögðu ekki til þess að fá eitthvað til baka. En þannig eignast þeir kannski vini sem eru fúsir til að hjálpa þeim þegar þeir þurfa á því að halda.
HVAÐ GETUR ÞÚ GERT?
Gefðu með þér af því sem þú átt. Þó að þú eigir ekki mikið geturðu kannski gefið með þér, þótt ekki sé nema af einfaldri máltíð. Duncan og fjölskylda hans, sem búa í Úganda, hafa gaman af að gefa öðrum þó að þau séu fátæk. Duncan segir: „Á sunnudögum útbúum við hjónin einfalda máltíð og bjóðum einhverjum í mat. Við höfum gaman af að verja tíma með öðrum.“
Þú þarft að sjálfsögðu að sýna skynsemi þegar þú gefur öðrum. Þú vilt auðvitað ekki skapa óþarfa erfiðleika fyrir fjölskyldu þína. – Jobsbók 17:5.
Prófaðu þetta: Bjóddu einhverjum í einfalda máltíð eða bara eitthvað að drekka. Hvernig væri að gefa vini eða nágranna það sem þú ert hættur að nota ef hann hefur gagn af því og kann að meta það?
Gefðu á fleiri vegu. Nokkrar af bestu gjöfunum kosta ekki peninga. Við getum til dæmis gefið öðrum af tíma okkar og athygli með því að hjálpa þeim. Vingjarnleg orð geta meira að segja verið gjöf. Segðu því öðrum að þér þyki vænt um þá og að þú kunnir að meta þá.
Prófaðu þetta: Hjálpaðu öðrum með húsverkin, að gera við á heimilinu eða útrétta fyrir þá. Skrifaðu fallegt kort eða sendu textaskilaboð til vinar þíns, jafnvel bara til að láta hann vita að þú hafir verið að hugsa til hans.
Það veitir mikla ánægju að leitast við að vera örlátur.