-
1. Mósebók 13:14, 15Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
14 Jehóva sagði við Abram eftir að Lot hafði skilið við hann: „Líttu í kringum þig frá staðnum þar sem þú ert og horfðu til norðurs, suðurs, austurs og vesturs. 15 Allt landið sem þú sérð gef ég þér og afkomendum þínum og það skal vera eign ykkar um ókomna tíð.+
-
-
1. Mósebók 26:3, 4Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
3 Búðu þar sem útlendingur.+ Ég verð með þér og blessa þig því að þér og afkomendum þínum gef ég öll þessi lönd+ og ég mun halda eiðinn sem ég sór Abraham föður þínum+ þegar ég sagði: 4 ‚Ég geri afkomendur þína eins marga og stjörnur á himni+ og ég gef þeim öll þessi lönd.+ Vegna afkomenda þinna munu allar þjóðir jarðar hljóta blessun.‘*+
-
-
Postulasagan 7:4, 5Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
4 Hann yfirgaf þá land Kaldea og settist að í Haran. Eftir að faðir hans dó+ lét Guð hann flytjast þaðan til þessa lands þar sem þið búið núna.+ 5 Samt gaf hann honum ekkert erfðaland hér, ekki einu sinni skika til að stíga fæti á. Hann lofaði hins vegar að gefa honum landið til eignar og afkomendum hans+ eftir hann þó að hann væri enn barnlaus.
-