Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • 4. Mósebók 4:15
    Biblían – Nýheimsþýðingin
    • 15 Aron og synir hans skulu ljúka við að breiða yfir allt sem tilheyrir helgidóminum+ og allan búnað helgidómsins áður en Ísraelsmenn leggja af stað. Síðan eiga Kahatítarnir að koma til að bera það+ en þeir mega ekki snerta það sem tilheyrir helgidóminum því að þá deyja þeir.+ Þetta er ábyrgð* Kahatíta hvað samfundatjaldið varðar.

  • 4. Mósebók 4:24–26
    Biblían – Nýheimsþýðingin
    • 24 Þetta er það sem ættum Gersoníta er falið að bera og annast:+ 25 Þeir eiga að bera tjalddúka tjaldbúðarinnar,+ dúka samfundatjaldsins, innra yfirtjald hennar og yfirtjaldið úr selskinnum sem er lagt yfir það,+ forhengið fyrir inngangi samfundatjaldsins,+ 26 tjöldin kringum forgarðinn,+ forhengið fyrir inngangi forgarðsins+ sem er kringum tjaldbúðina og altarið, stögin og öll áhöldin og allt sem er notað við þjónustuna. Það er verkefni þeirra.

  • 4. Mósebók 4:31–33
    Biblían – Nýheimsþýðingin
    • 31 Þetta er það sem þeir eiga að sjá um að bera+ í þjónustu sinni við samfundatjaldið: veggramma+ tjaldbúðarinnar, þverslár+ hennar, súlur+ og undirstöðuplötur,+ 32 súlurnar+ kringum forgarðinn, undirstöðuplöturnar,+ tjaldhælana+ og stögin ásamt öllum tilheyrandi búnaði og öllu sem er notað við þjónustuna þar. Þið skuluð úthluta hverjum og einum þeim búnaði sem hann á að bera. 33 Þetta er sú þjónusta sem ættir Meraríta+ eiga að inna af hendi við samfundatjaldið undir stjórn Ítamars, sonar Arons prests.“+

Íslensk rit (1985-2025)
Útskrá
Innskrá
  • íslenska
  • Deila
  • Stillingar
  • Copyright © 2025 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
  • Notkunarskilmálar
  • Persónuverndarstefna
  • Persónuverndarstillingar
  • JW.ORG
  • Innskrá
Deila