-
2. Konungabók 22:12, 13Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
12 Síðan gaf hann Hilkía presti, Ahíkam+ Safanssyni, Akbór Míkajasyni, Safan ritara og Asaja þjóni konungs þessi fyrirmæli: 13 „Farið og spyrjið Jehóva fyrir mig, fólkið og allan Júda um það sem stendur í bókinni sem hefur fundist. Reiði Jehóva, sem hefur blossað upp gegn okkur, er mikil+ því að forfeður okkar hlýddu ekki því sem stendur í bókinni og fylgdu ekki þeim fyrirmælum sem þar eru skráð handa okkur.“
-
-
Jeremía 39:13, 14Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
13 Nebúsaradan varðforingi, Nebúsasban yfirhirðstjóri,* Nergalsareser rabmag* og allir forystumenn Babýlonarkonungs sendu þá menn 14 til að sækja Jeremía í Varðgarðinn.+ Þeir fóru með hann til Gedalja,+ sonar Ahíkams+ Safanssonar,+ sem átti að fara með hann heim til sín. Jeremía bjó síðan meðal fólksins.
-
-
Jeremía 40:5Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
5 Þar sem Jeremía hikaði við að snúa til baka sagði Nebúsaradan: „Farðu aftur til Gedalja,+ sonar Ahíkams+ Safanssonar,+ sem konungur Babýlonar hefur sett yfir borgirnar í Júda. Þú getur búið hjá honum meðal fólksins eða farið hvert sem þú vilt.“
Varðforinginn gaf honum síðan nesti og gjöf og sendi hann burt.
-