-
1. Konungabók 7:9–12Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
9 Allar byggingarnar voru hlaðnar úr dýrum steinum+ frá grunni og upp á veggbrúnir. Þeir voru höggnir til eftir máli og skornir til með steinsög að innan- og utanverðu. Það sama var gert við alla steina úti fyrir, allt að stóra forgarðinum.+ 10 Undirstöðurnar voru úr stórum, dýrum steinum. Sumir þeirra voru tíu álnir en aðrir átta álnir. 11 Ofan á þeim voru dýrir steinar, höggnir til eftir máli, og sedrusviður. 12 Múrinn í kringum stóra forgarðinn var úr þrem lögum af tilhöggnum steinum og einu lagi af sedrusbjálkum, rétt eins og múrinn í kringum innri forgarðinn+ við hús Jehóva og forsal hússins.*+
-