32Þegar fólkið sá að það dróst að Móse kæmi ofan af fjallinu+ safnaðist það kringum Aron og sagði við hann: „Gerðu guð handa okkur til að fara fyrir okkur+ því að við vitum ekki hvað er orðið um þennan Móse, manninn sem leiddi okkur út úr Egyptalandi.“
4 Hann tók við gullinu, mótaði það með meitli og gerði úr því líkneski* af kálfi.+ Þá sagði fólkið: „Ísrael, þetta er Guð þinn sem leiddi þig út úr Egyptalandi.“+
25Meðan Ísraelsmenn dvöldust í Sittím+ fóru þeir að drýgja kynferðislegt siðleysi með móabískum konum.+2 Konurnar buðu fólkinu að vera með þegar guðum þeirra+ voru færðar fórnir og fólkið borðaði og féll fram fyrir guðum þeirra.+
42 Guð sneri því baki við þeim og lét þá tilbiðja her himinsins+ eins og skrifað stendur í bók spámannanna: ‚Ekki var það mér sem þið Ísraelsmenn færðuð sláturdýr og fórnir í 40 ár í óbyggðunum.