Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • Markús 12:1–9
    Biblían – Nýheimsþýðingin
    • 12 Nú fór hann að segja þeim dæmisögur: „Maður plantaði víngarð,+ girti hann af, gróf fyrir vínpressu og reisti turn.+ Hann leigði hann síðan vínyrkjum og fór úr landi.+ 2 Þegar kom að uppskerunni sendi hann þræl til vínyrkjanna til að fá hjá þeim hluta af uppskeru víngarðsins. 3 En þeir tóku hann, börðu og sendu tómhentan burt. 4 Hann sendi annan þræl til þeirra og þeir börðu hann í höfuðið og smánuðu.+ 5 Hann sendi enn einn og þeir drápu hann, og hann sendi marga aðra sem þeir ýmist börðu eða drápu. 6 Nú átti hann einn eftir, elskaðan son sinn.+ Hann sendi hann síðastan til þeirra. ‚Þeir eiga eftir að virða son minn,‘ hugsaði hann með sér. 7 En vínyrkjarnir sögðu hver við annan: ‚Þetta er erfinginn.+ Komum, drepum hann og þá fáum við arfinn.‘ 8 Síðan tóku þeir hann og drápu og köstuðu honum út fyrir víngarðinn.+ 9 Hvað gerir þá eigandi víngarðsins? Hann kemur og drepur vínyrkjana og fær öðrum víngarðinn.+

  • Lúkas 20:9–16
    Biblían – Nýheimsþýðingin
    • 9 Síðan sagði hann fólkinu þessa dæmisögu: „Maður plantaði víngarð,+ leigði hann vínyrkjum, fór úr landi og dvaldi erlendis um alllangan tíma.+ 10 Þegar kom að uppskerunni sendi hann þræl til vínyrkjanna til að þeir gæfu honum hluta af uppskeru víngarðsins. En vínyrkjarnir börðu hann og sendu hann burt tómhentan.+ 11 Hann sendi þá annan þræl. Þeir börðu hann einnig, niðurlægðu og sendu burt tómhentan. 12 Hann sendi nú þriðja þrælinn og þeir misþyrmdu honum líka og köstuðu honum út. 13 Þá hugsaði eigandi víngarðsins með sér: ‚Hvað á ég að gera? Ég ætla að senda elskaðan son minn.+ Þeir hljóta að virða hann.‘ 14 Þegar vínyrkjarnir sáu hann báru þeir saman ráð sín og sögðu: ‚Þetta er erfinginn. Drepum hann svo að við getum fengið arfinn.‘ 15 Síðan köstuðu þeir honum út fyrir víngarðinn og drápu hann.+ Hvað gerir eigandi víngarðsins nú við þá? 16 Hann kemur og drepur vínyrkjana og fær öðrum víngarðinn.“

      Þegar fólkið heyrði þetta sagði það: „Þetta má aldrei gerast!“

Íslensk rit (1985-2025)
Útskrá
Innskrá
  • íslenska
  • Deila
  • Stillingar
  • Copyright © 2025 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
  • Notkunarskilmálar
  • Persónuverndarstefna
  • Persónuverndarstillingar
  • JW.ORG
  • Innskrá
Deila