-
5. Mósebók 7:3, 4Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
3 Þú mátt ekki stofna til nokkurra hjúskapartengsla* við þær. Gefðu ekki sonum þeirra dætur þínar og taktu ekki dætur þeirra handa sonum þínum.+ 4 Það myndi snúa sonum ykkar og dætrum frá mér og verða til þess að þau þjónuðu öðrum guðum.+ Þá myndi reiði Jehóva blossa upp gegn ykkur og hann myndi útrýma ykkur snarlega.+
-
-
Nehemíabók 13:25, 26Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
25 Ég ávítaði þá, formælti þeim og barði nokkra þeirra,+ hárreytti þá, lét þá sverja við Guð og sagði: „Þið skuluð ekki gefa sonum þeirra dætur ykkar og þið skuluð ekki taka nokkrar af dætrum þeirra handa sonum ykkar eða sjálfum ykkur.+ 26 Var það ekki af þessum orsökum sem Salómon konungur Ísraels syndgaði? Meðal hinna mörgu þjóða var enginn konungur honum líkur.+ Guð hans elskaði hann+ og gerði hann að konungi yfir öllum Ísrael en útlendu eiginkonurnar fengu jafnvel hann til að syndga.+
-