-
Opinberunarbókin 6:9, 10Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
9 Þegar lambið rauf fimmta innsiglið sá ég undir altarinu+ sálir*+ þeirra sem höfðu verið drepnir vegna orðs Guðs og vegna þess að þeir höfðu borið vitni.+ 10 Þeir hrópuðu hárri röddu: „Alvaldur Drottinn, þú sem ert heilagur og sannur,+ hve lengi ætlarðu að bíða með að dæma þá sem búa á jörðinni og hefna blóðs okkar á þeim?“+
-
-
Opinberunarbókin 19:1, 2Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
19 Eftir þetta heyrði ég eitthvað sem hljómaði eins og sterkur ómur mikils fjölda á himni sem sagði: „Lofið Jah!*+ Frelsunin, dýrðin og mátturinn tilheyrir Guði okkar 2 því að dómar hans eru sannir og réttlátir.+ Hann hefur fullnægt dómi yfir vændiskonunni miklu sem spillti jörðinni með kynferðislegu siðleysi* sínu og hann hefur hefnt blóðs þjóna sinna sem hún hefur úthellt.“*+
-