Sálmur
Söngljóð eftir Davíð.
101 Ég vil syngja um tryggan kærleika og réttlæti.
Ég vil lofsyngja* þig, Jehóva.
2 Ég skal vera skynsamur og ráðvandur.*
Hvenær kemur þú til mín?
Ég skal ganga fram með hreinu hjarta+ í húsi mínu.
3 Ég neita að horfa á það sem er einskis virði.
4 Svikult hjarta er fjarri mér,
ég sætti mig ekki við* hið illa.
Ef einhver er stoltur og hrokafullur í hjarta
umber ég hann ekki.
6 Augu mín hvíla á hinum trúföstu á jörðinni
svo að þeir fái að búa hjá mér.
Sá sem er óaðfinnanlegur* mun þjóna mér.
7 Enginn svikull maður fær að búa í húsi mínu
og enginn lygari fær að vera nálægt* mér.