Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • 1. Mósebók 14
  • Biblían – Nýheimsþýðingin

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

1. Mósebók – yfirlit

      • Abram bjargar Lot (1–16)

      • Melkísedek blessar Abram (17–24)

1. Mósebók 14:1

Millivísanir

  • +1Mó 10:9, 10
  • +1Mó 14:17
  • +1Mó 10:22

Efnislykill

  • Efnislykillinn

    Varðturninn,

    1.10.2001, bls. 27

    1.11.1989, bls. 4-5

1. Mósebók 14:2

Millivísanir

  • +1Mó 10:19; 13:12
  • +1Mó 13:10, 12
  • +5Mó 29:23

1. Mósebók 14:3

Neðanmáls

  • *

    Eða „á Siddímsléttu“.

  • *

    Það er, Dauðahaf.

Millivísanir

  • +1Mó 14:10
  • +4Mó 34:2, 12

1. Mósebók 14:5

Millivísanir

  • +5Mó 2:10, 11

1. Mósebók 14:6

Millivísanir

  • +5Mó 2:12
  • +1Mó 36:8

1. Mósebók 14:7

Millivísanir

  • +4Mó 20:1
  • +1Mó 36:12; 1Sa 15:2
  • +1Mó 10:15, 16
  • +2Kr 20:2

1. Mósebók 14:9

Millivísanir

  • +1Mó 14:1, 2

1. Mósebók 14:11

Millivísanir

  • +1Mó 14:16

1. Mósebók 14:12

Millivísanir

  • +1Mó 19:1

1. Mósebók 14:13

Neðanmáls

  • *

    Eða „bjó þá í tjöldum“.

Millivísanir

  • +1Mó 13:18
  • +1Mó 14:24

1. Mósebók 14:14

Neðanmáls

  • *

    Orðrétt „bróðir“.

Millivísanir

  • +1Mó 11:27
  • +Dóm 18:29

Efnislykill

  • Efnislykillinn

    Varðturninn,

    1.10.2001, bls. 27

1. Mósebók 14:17

Millivísanir

  • +2Sa 18:18

1. Mósebók 14:18

Millivísanir

  • +Sl 110:4; Heb 6:20
  • +Heb 7:1, 2
  • +Sl 83:18; Heb 5:5, 10

1. Mósebók 14:20

Millivísanir

  • +Heb 7:4

Efnislykill

  • Efnislykillinn

    Varðturninn,

    1.12.1990, bls. 9-10

1. Mósebók 14:24

Millivísanir

  • +1Mó 14:13

Almennt

1. Mós. 14:11Mó 10:9, 10
1. Mós. 14:11Mó 14:17
1. Mós. 14:11Mó 10:22
1. Mós. 14:21Mó 10:19; 13:12
1. Mós. 14:21Mó 13:10, 12
1. Mós. 14:25Mó 29:23
1. Mós. 14:31Mó 14:10
1. Mós. 14:34Mó 34:2, 12
1. Mós. 14:55Mó 2:10, 11
1. Mós. 14:65Mó 2:12
1. Mós. 14:61Mó 36:8
1. Mós. 14:74Mó 20:1
1. Mós. 14:71Mó 36:12; 1Sa 15:2
1. Mós. 14:71Mó 10:15, 16
1. Mós. 14:72Kr 20:2
1. Mós. 14:91Mó 14:1, 2
1. Mós. 14:111Mó 14:16
1. Mós. 14:121Mó 19:1
1. Mós. 14:131Mó 13:18
1. Mós. 14:131Mó 14:24
1. Mós. 14:141Mó 11:27
1. Mós. 14:14Dóm 18:29
1. Mós. 14:172Sa 18:18
1. Mós. 14:18Sl 110:4; Heb 6:20
1. Mós. 14:18Heb 7:1, 2
1. Mós. 14:18Sl 83:18; Heb 5:5, 10
1. Mós. 14:20Heb 7:4
1. Mós. 14:241Mó 14:13
  • Biblían – Nýheimsþýðingin
  • 1
  • 2
  • 3
  • 4
  • 5
  • 6
  • 7
  • 8
  • 9
  • 10
  • 11
  • 12
  • 13
  • 14
  • 15
  • 16
  • 17
  • 18
  • 19
  • 20
  • 21
  • 22
  • 23
  • 24
Biblían – Nýheimsþýðingin
1. Mósebók 14:1–24

Fyrsta Mósebók

14 Þegar Amrafel var konungur í Sínear,+ Arjók konungur í Ellasar, Kedorlaómer+ konungur í Elam+ og Tídal konungur í Gojím 2 fóru þeir í stríð við Bera, konung í Sódómu,+ Birsa, konung í Gómorru,+ Sínab, konung í Adma, Semeber, konung í Sebóím,+ og konunginn í Bela, það er að segja Sóar. 3 Allir þessir söfnuðu hersveitum sínum saman í Siddímdalnum*+ en þar er nú Saltisjór.*+

4 Þeir höfðu þjónað Kedorlaómer í 12 ár en á 13. árinu gerðu þeir uppreisn. 5 Á 14. árinu komu því Kedorlaómer og konungarnir sem voru með honum og sigruðu Refaíta í Asterót Karnaím, Súsíta í Ham, Emíta+ á Kirjataímvöllum 6 og Hóríta+ í fjalllendi þeirra í Seír+ allt til El Paran sem er við óbyggðirnar. 7 Síðan sneru þeir við og komu til En Mispat, það er að segja Kades.+ Þeir lögðu undir sig allt landsvæði Amalekíta+ og sigruðu Amoríta+ sem bjuggu í Hasason Tamar.+

8 Þá lagði konungurinn í Sódómu af stað og einnig konungurinn í Gómorru, konungurinn í Adma, konungurinn í Sebóím og konungurinn í Bela, það er Sóar. Þeir fylktu liði sínu gegn þeim í Siddímdalnum, 9 gegn Kedorlaómer, konungi í Elam, Tídal, konungi í Gojím, Amrafel, konungi í Sínear, og Arjók, konungi í Ellasar+ – fjórir konungar á móti fimm. 10 Jarðbiksgryfjur voru á víð og dreif um Siddímdal og þegar konungarnir í Sódómu og Gómorru reyndu að flýja féllu þeir ofan í þær. Hinir flúðu til fjalla. 11 Sigurvegararnir tóku öll verðmæti Sódómu og Gómorru og allar vistir þeirra og fóru burt.+ 12 Þeir tóku líka Lot bróðurson Abrams og eigur hans og fóru sína leið, en Lot bjó í Sódómu.+

13 Nú kom maður sem hafði tekist að flýja og sagði Hebreanum Abram hvað hafði gerst. Abram bjó þá* við stóru trén sem voru í eigu Amorítans Mamre,+ bróður Eskols og Aners.+ Þeir voru bandamenn Abrams. 14 Þegar Abram frétti að frændi* sinn+ hefði verið hertekinn kallaði hann saman 318 þjálfaða menn sína sem fæddust í húsi hans og hóf eftirför allt til Dan.+ 15 Hann og þjónar hans skiptu liði að næturlagi og réðust síðan á óvinina og sigruðu þá. Þeir eltu þá allt til Hóba sem er fyrir norðan Damaskus. 16 Abram tók af þeim allt herfangið og endurheimti einnig Lot frænda sinn og eigur hans, konurnar og hina fangana.

17 Þegar Abram sneri heim á leið eftir sigurinn á Kedorlaómer og konungunum sem voru með honum fór konungurinn í Sódómu út á móti honum til að hitta hann í Savedal, það er að segja Kóngsdal.+ 18 Og Melkísedek,+ konungur í Salem,+ kom með brauð og vín. Hann var prestur hins hæsta Guðs.+

19 Hann blessaði hann og sagði:

„Blessaður sé Abram af hinum hæsta Guði,

skapara himins og jarðar.

20 Og lofaður sé hinn hæsti Guð

sem hefur gefið kúgara þína þér í hendur.“

Abram gaf honum síðan tíund af öllu.+

21 Þá sagði konungurinn í Sódómu við Abram: „Láttu mig hafa fólkið en þú skalt halda herfanginu.“ 22 En Abram sagði við konunginn í Sódómu: „Ég lyfti hendi minni og sver við Jehóva, hinn hæsta Guð og skapara himins og jarðar, 23 að ég tek ekkert sem þú átt, hvorki þráð né sandalaól, svo að þú getir ekki sagt: ‚Ég gerði Abram ríkan.‘ 24 Ég tek ekkert nema það sem ungu mennirnir hafa þegar borðað. En Aner, Eskol og Mamre,+ mennirnir sem fóru með mér, þeir mega taka sinn hlut.“

Íslensk rit (1985-2025)
Útskrá
Innskrá
  • íslenska
  • Deila
  • Stillingar
  • Copyright © 2025 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
  • Notkunarskilmálar
  • Persónuverndarstefna
  • Persónuverndarstillingar
  • JW.ORG
  • Innskrá
Deila