‚Villa á sér heimildir‘
Þannig hljóðaði feitletruð fyrirsögn í dagblaðinu The Winnipeg Sun í Kanada. „Vaxandi fjöldi sjúklinga, hræddir við að fá alnæmi eða aðra kvilla tengda blóði, villa á sér heimildir og þykjast vera vottar Jehóva,“ segir í greininni. „Kirkjuöldungar hafa fundið á annan tug manna, sem hafa villt á sér heimildir, á umferð sinni um spítalana.“ Ein kona sagði að hún hefði þóst vera vottur til að þurfa ekki að deila við læknana um meðferð. „Það er ekki af trúarlegum ástæðum sem ég vil ekki fá blóð,“ sagði hún. „Þegar maður fær blóð úr einhverjum öðrum er engin trygging fyrir því að það geri mann heilbrigðari. Það gæti gert mann enn veikari eða jafnvel kostað mann lífið.“ Upp komst um einn þegar sjúkrahússprestur sá hann sitja í rúmi sínu reykjandi vindil. Kindarlegur játaði maðurinn að hann væri ekki vottur. „Ég vildi bara ekki fá blóð,“ sagði hann. „Ég er læknir.“