Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • my saga 28
  • Barninu Móse bjargað

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Barninu Móse bjargað
  • Biblíusögubókin mín
  • Svipað efni
  • Móse valdi að þjóna Jehóva
    Lærum af sögum Biblíunnar
  • „Lofsyngjum Jehóva“
    Líkjum eftir trú þeirra
  • Hver var Móse?
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2013
  • Hvers vegna Móse flúði
    Biblíusögubókin mín
Sjá meira
Biblíusögubókin mín
my saga 28

KAFLI 28

Barninu Móse bjargað

SJÁÐU litla barnið sem heldur grátandi um fingur konunnar. Það er Móse. Veistu hver þessi fína kona er? Hún er egypsk prinsessa, dóttir sjálfs Faraós.

Móðir Móse faldi nýfædda drenginn sinn þar til hann var þriggja mánaða gamall til þess að Egyptarnir dræpu hann ekki. En hún vissi að Móse gæti fundist. Nú skaltu heyra hvað hún gerði til að bjarga honum.

Hún tók sér körfu og þétti hana svo að ekkert vatn læki inn í hana. Síðan lagði hún Móse í körfuna og kom henni fyrir í sefinu sem óx meðfram ánni Níl. Mirjam, systur Móse, var sagt að standa skammt frá og sjá hvað myndi gerast.

Innan skamms kom dóttir Faraós niður að ánni til að baða sig. Allt í einu sá hún körfuna í háu sefinu. ‚Náðu í þessa körfu fyrir mig,‘ sagði hún við eina af þjónustustúlkum sínum. Og þegar prinsessan opnaði körfuna sá hún þar fallegt smábarn! Móse litli grét og prinsessan vorkenndi honum. Hún vildi ekki að hann yrði deyddur.

Þá kom Mirjam þangað. Þú sérð hana á myndinni. ‚Á ég að fara og finna ísraelska konu sem getur haft barnið á brjósti fyrir þig?‘ spurði Mirjam dóttur Faraós.

‚Já, gerðu það,‘ svaraði prinsessan.

Mirjam hljóp á harðaspretti og sótti móður sína. Móðir Móse kom til prinsessunnar sem sagði: ‚Taktu þetta barn og hafðu það á brjósti fyrir mig og ég skal launa þér fyrir.‘

Og þannig annaðist móðir Móse sitt eigið barn. Þegar Móse var orðinn nógu gamall fór hún með hann til dóttur Faraós sem tók hann að sér sem sinn eigin son. Þannig bar það til að Móse ólst upp í húsi Faraós.

2. Mósebók 2:1-10.

    Íslensk rit (1985-2025)
    Útskrá
    Innskrá
    • íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2025 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila