FORSÍÐUEFNI | LYGAR SEM GERA ÞAÐ ERFITT AÐ ELSKA GUÐ
Er erfitt að elska Guð?
„,Þú skalt elska Jehóva Guð þinn af öllu hjarta þínu, allri sál þinni og öllum huga þínum.‘ Þetta er mesta og æðsta boðorðið.“ – Jesús Kristur, árið 33. e.Kr.a
Sumum finnst erfitt að elska Guð. Í augum þeirra er hann óskiljanlegur, fjarlægur eða jafnvel grimmur. Taktu eftir því sem sumir segja:
„Ég bað Guð um hjálp en samt fannst mér hann vera mjög fjarlægur og nánast ómögulegt að ná sambandi við hann. Fyrir mér var hann óskiljanleg vera án tilfinninga.“ – Marco, Ítalía.
„Ég hafði einlæga löngun til að þjóna Guði en mér fannst hann vera svo langt í burtu. Ég hugsaði um hann sem harðan og refsiglaðan Guð. Ég trúði ekki að hann hefði blíðar tilfinningar.“ – Rosa, Gvatemala.
„Sem barn trúði ég að Guð væri bara að leita að göllum okkar, reiðubúinn að refsa okkur ef við áttum það skilið. Seinna fannst mér hann bara fáskiptinn. Guð var eins og forsætisráðherra sem fer með stjórn fyrir hönd þjóðarinnar en hefur engan áhuga á henni.“ – Raymonde, Kanada.
Hvað heldur þú? Er Guð elskuverður? Kristnir menn hafa velt því fyrir sér í aldaraðir. Á miðöldum báðu reyndar fáir í kristna heiminum til Guðs hins almáttuga. Hvers vegna? Fólk var sjúklega hrætt við hann. Sagnaritarinn Will Durant orðar þetta svona: „Hvernig gæti syndum vafinn maður haft kjark til að nálgast svo hræðilegt og fjarlægt hásæti?“
Hvað varð til þess að fólk fór að líta á Guð sem ,hræðilegan og fjarlægan‘? Getur það að læra sannleikann um Guð hjálpað þér að elska hann?