Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • w14 15.6. bls. 8-11
  • Hvernig getum við aðstoðað fráskilin trúsystkini?

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Hvernig getum við aðstoðað fráskilin trúsystkini?
  • Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2014
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • TILFINNINGARÓT
  • BARÁTTAN VIÐ AÐ NÁ TÖKUM Á LÍFINU Á NÝ
  • GLÍMT VIÐ EINMANLEIKA OG HÖFNUN
  • Að ná sér eftir skilnað
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2013
  • Áhrif skilnaðar á börn
    Góð ráð handa fjölskyldunni
  • Hjónaskilnaðir hin beiska uppskera
    Vaknið! – 1992
  • Hefur Guð kallað þig að lifa í friði?
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1989
Sjá meira
Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2014
w14 15.6. bls. 8-11

Hvernig getum við aðstoðað fráskilin trúsystkini?

Kona hughreystir fráskilda trúsystur.

Trúlega þekkirðu einhvern eða einhverja sem hafa gengið í gegnum skilnað, enda eru hjónaskilnaðir mjög algengir. Til dæmis kom fram í rannsókn í Póllandi að hjónaskilnaðir séu tíðastir hjá fólki um þrítugt sem hefur verið gift í þrjú til sex ár, og skilnaðir einskorðast ekki við þennan aldurshóp.

Samkvæmt Hagstofu Íslands má ætla að tæplega 36 prósent hjónabanda á Íslandi endi með skilnaði.

TILFINNINGARÓT

Hvað liggur að baki þessum tölum? Reyndur hjónabandsráðgjafi í Austur-Evrópu segir: „Skilnaður opinberar það sem þegar hefur átt sér stað – sambandsslit og aðskilnað. Hvort tveggja er mjög sárt tilfinningalega.“ Hann bætir við: „Sterkar tilfinningar eins og reiði, eftirsjá, vonbrigði, örvænting og skömm slá fólk oft út af laginu“ eftir skilnað. Stundum vakna sjálfsvígshugsanir í kjölfarið. „Þegar búið er að ganga frá skilnaðarpappírunum hefst nýr kafli. Vera má að hinn fráskildi finni til tómleika og einangrunar. Hann veltir kannski fyrir sér hvert hlutverk hans sé í lífinu eftir skilnaðinn.“

Eva rifjar upp hvernig henni leið fyrir nokkrum árum: „Ég fann fyrir mikilli skömm þegar nágrannar og vinnufélagar stimpluðu mig sem fráskilda konu eftir skilnaðinn. Ég var sár og bitur. Ég sat ein uppi með tvö ung börn og þurfti að sinna bæði móður- og föðurhlutverkinu.“a Adam var safnaðaröldungur í 12 ár. Hann segir: „Sjálfsvirðing mín beið mikinn hnekki svo að stundum verð ég mjög reiður. Þá er freistandi að einangra sig frá öllum.“

BARÁTTAN VIÐ AÐ NÁ TÖKUM Á LÍFINU Á NÝ

Sumir eiga í baráttu við að ná tökum á lífinu, jafnvel mörgum árum eftir skilnað, vegna þess að þeir hafa stöðugar áhyggjur af framtíð sinni. Þeim finnst kannski að þeir séu skildir út undan. Greinahöfundur á sviði sálfræði segir auk þess að nú neyðist þeir til að „breyta um lífsvenjur og læra að takast á við vandamálin upp á eigin spýtur“.

Stanisław segir: „Fyrrverandi konan mín neitaði mér um að hitta litlu dætur mínar tvær eftir að við skildum. Það varð til þess að mér fannst öllum vera sama um mig og mér fannst jafnvel að Jehóva hefði yfirgefið mig. Mig langaði ekki til að lifa lengur. Með tímanum skildi ég hvað þetta var röng hugsun.“ Fráskilin kona, sem heitir Wanda, kveið líka framtíðinni: „Ég var viss um að allir – þar á meðal trúsystkini – myndu hætta að sýna mér og börnunum áhuga að einhverjum tíma liðnum. Ég sé samt núna hve vel bræður og systur studdu við bakið á okkur og aðstoðuðu mig þegar ég reyndi mitt besta við að ala börnin upp í sannleikanum.“

Eins og sjá má af þessum athugasemdum verða sumir gagnteknir af neikvæðum tilfinningum eftir skilnað. Sjálfsmynd þeirra getur orðið brothætt, þeim fundist þeir lítils virði og ekki þess verðir að fá athygli annarra. Þeir gætu líka orðið gagnrýnir á aðra. Þá getur þeim fundist eins og trúsystkini sýni sér litla samúð og söfnuðurinn sé kaldur. Reynsla Stanisławs og Wöndu sýnir þó að fráskilin trúsystkini geta með tímanum fundið að bræðrum þeirra og systrum er annt um þau. Oft hafa trúsystkini hugsað mjög vel um fráskilda í söfnuðinum, jafnvel þó að þeir hafi ekki tekið eftir því til að byrja með.

GLÍMT VIÐ EINMANLEIKA OG HÖFNUN

Mundu að trúsystkini, sem hafa gengið í gegnum skilnað, finna kannski til einmanaleika af og til þótt við reynum okkar besta til að aðstoða þau. Fráskildum systrum getur ekki síst fundist fáir veita sér athygli. Alicja viðurkennir til dæmis: „Það eru átta ár síðan ég skildi en samt fæ ég stundum minnimáttarkennd. Þá langar mig mest til að loka mig af, vorkenna sjálfri mér og gráta.“

Þó að slíkar tilfinningar séu algengar hjá þeim sem eru að ganga í gegnum skilnað varar Biblían við því að einangra sig. Hætt er við að sá sem gerir það ,hafni hverju hollráði‘. (Orðskv. 18:1) Sá sem er einmana ætti þó að hafa í huga að það er ekki skynsamlegt að venja sig á að leita huggunar hjá einhverjum af hinu kyninu því að það gæti vakið upp sterkar tilfinningar sem eiga ekki rétt á sér.

Fráskilin trúsystkini eru kannski að berjast við erfiðar tilfinningar eins og kvíða, einmanaleika og jafnvel höfnun. Slíkar tilfinningar eru bæði algengar og erfiðar viðfangs. Við ættum að líkja eftir Jehóva og styðja dyggilega við bakið á trúsystkinum okkar. (Sálm. 55:23; 1. Pét. 5:6, 7) Við getum treyst því að öll aðstoð, sem við veitum þeim, er mikils metin. Þá finna þau að innan safnaðarins eiga þau trygga vini. – Orðskv. 17:17; 18:24.

a Sumum nöfnum hefur verið breytt.

Rétt viðhorf til skilnaðar

Við sem þjónum Jehóva tökum hjónabandið alvarlega vegna þess að við byggjum viðhorf okkar á orði hans, Biblíunni. Til dæmis segir Jehóva berum orðum í Malakí 2:16: „Ég hata hjónaskilnað.“ (Biblían 1981) Eina gilda ástæðan, sem Biblían gefur fyrir hjónaskilnaði, er að makinn gerist sekur um kynferðislegt siðleysi. Það væri því mjög vanhugsað að sækja um skilnað af öðrum orsökum og vera jafnvel farinn að íhuga að giftast einhverjum öðrum. – 1. Mós. 2:22-24; 5. Mós. 5:21; Matt. 19:4-6, 9.

En þegar trúsystkini gengur í gegnum hjónaskilnað, til dæmis vegna þess að makinn reyndist ótrúr, reynast bræður og systur í söfnuðinum vinir í raun. Þau líkja eftir Jehóva með því að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að hjálpa þeim sem leggja sig fram um að gera rétt en „hafa sundurkraminn anda“ um tíma. – Sálm. 34:16, 19; Jes. 41:10.

Hvernig Getur Þú Hjálpað?

Getur þú veitt aðkallandi hjálp? Hvað geturðu gert til að aðstoða þá sem eiga við erfiðar tilfinningar að stríða eins og rætt er um fyrr í greininni? Hugleiddu það sem Biblían segir og taktu eftir hvað trúir bræður og systur hafa gert til að veita hjálp.

Hlustaðu af athygli. (Orðskv. 16:20, 23)

Það er skiljanlegt að fólk vilji kannski ekki ræða í smáatriðum um hvað leiddi til skilnaðarins. Það getur gert meira ógagn en gagn að tala um allt sem manni gremst. Og manni líður líklega ekkert betur á eftir. (Orðskv. 12:25; Rómv. 12:15) Michał hjálpaði Adam, sem rætt var um fyrr í greininni. Michał segir að hægt sé að hlusta af athygli og sýna samúð án þess að heyra alla málavexti: „Ég hef minnt Adam á að hann gæti misst eitthvað út úr sér þegar hann er ekki í jafnvægi og neikvæðar hugsanir leita á hann. Hann segir þá kannski eitthvað sem hann sér eftir síðar.“ Michał lét því skýrt í ljós að hann sæktist ekki eftir því að heyra öll smáatriði málsins en hlustaði þó af samúð. Við getum gert mikið gagn, jafnvel fyrir og eftir samkomur, einfaldlega með því að segja eitthvað á borð við: „Hvernig líður þér? Ég get alveg ímyndað mér að það sé dálítið erfitt hjá þér núna. Ég hugsa oft til þín.“

Sýndu persónulegan áhuga. (Fil. 2:4)

Mirosław segir: „Við hjónin tökum frá ákveðinn tíma til að aðstoða fráskilda systur. Við löguðum til dæmis lásinn á útidyrunum hennar. Við skutluðum henni líka á læknastofuna.“ Þó að þetta séu ekki flóknir hlutir komu þeir sér vel fyrir hana. Með tímanum náði systirin jafnvægi á ný. Hún varð meira að segja brautryðjandi og dóttir hennar lét skírast 11 ára.

Hjón sýna fráskilinni trúsystur umhyggju.

Fullvissaðu hinn fráskilda um að Jehóva skilji hvað hann sé að ganga í gegnum.

Þú getur fullvissað þann sem þjáist af vanmáttarkennd um að Jehóva meti mikils hvern og einn þjón sinn. Hann telur okkur einstök og mikils virði. Við erum sannarlega „meira virði en margir spörvar“. (Matt. 10:29-31) Jehóva „prófar hjörtun“ og skilur því vel þá sem hafa gengið í gegnum skilnað. Hann yfirgefur engan trúan þjón sinn. (Orðskv. 17:3; Sálm. 145:18; Hebr. 13:5) Þegar þú sýnir einhverjum að þér sé annt um hann skaltu fullvissa hann um að Jehóva kunni að meta það sem hann leggur á sig vegna sannleikans og trúfesti hans við sig. – Fil. 2:29.

Hvettu hinn fráskilda til að starfa náið með söfnuðinum.

Sumum finnst erfitt að mæta á samkomur þegar þeir eru ekki í tilfinningalegu jafnvægi. En samkomurnar eru til þess gerðar að styrkja okkur og hvetja – okkur „til uppbyggingar“. (1. Kor. 14:26; Sálm. 122:1) Frumkvæði öldunganna er ómetanlegt. Wanda, sem rætt var um áður, segir: „Við höfum ekki gleymt kærleika þeirra og umhyggju.“

Hvettu hinn fráskilda til að styrkja samband sitt við Jehóva með bæn, sjálfsnámi og íhugun. (Jak. 4:8)

Jehóva er almáttugur og býr á himnum. Samt veitir hann þeim athygli „sem er umkomulaus og beygður í anda og skelfur fyrir orði [hans]“. Fullvissaðu hinn fráskilda um að Jehóva geri það og minntu hann á að með því að nálægja okkur Jehóva enn meira, með bæn og sjálfsnámi, fáum við öll þá hjálp sem við þurfum. – Jes. 66:2.

Bjóddu hinum fráskilda samstarf eða undirbúið ykkur saman fyrir samkomu.

Tveir trúbræður boða fagnaðarerindið saman.

Það gefur honum aukið öryggi til að takast á við lífið. Marta aðstoðar ötula systur sem var niðurbrotin eftir skilnað. „Við förum reglulega saman í boðunarstarfið,“ segir Marta. „Það er svo gaman þegar við finnum að við náum þeim markmiðum sem við setjum okkur. Stundum undirbúum við okkur saman fyrir samkomu og fáum okkur jafnvel eitthvað gott í gogginn á eftir.“

    Íslensk rit (1985-2025)
    Útskrá
    Innskrá
    • íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2025 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila