Guðveldisfréttir
Filippseyjar: Febrúarskýrslan leiddi í ljós nýtt boðberahámark, alls 117.519 boðberar. Biblíunám fóru yfir 100.000 í fyrsta sinn, en alls var greint frá 100.146 námum. Blaðadreifingin jókst um meira en 100.000 blöð í nóvembermánuði 1993 vegna þess að farið var að prenta blöðin í fullum litum.
Haítí: Tólf prósent aukning í febrúar færði þeim nýtt hámark 9115 boðbera. Alls 15.824 sóttu svæðismótin fyrir þjónustuárið 1994 og 252 létu skírast.
Japan: Febrúar var mjög kaldur mánuður og með mikilli sjókomu. Engu að síður náðist nýtt boðberahámark með 188.844 boðbera. Einnig náðu endurheimsóknir, biblíunám og fjöldi reglulegra brautryðjenda nýju hámarki.