Til minnis vegna Minningarhátíðar
Minningarhátíðin verður haldin sunnudaginn 23. mars, og ættu öldungarnir að gefa eftirfarandi málum gaum:
◼ Gæta ætti þess, þegar samkomutíminn er ákveðinn, að brauðið og vínið verði ekki borið fram fyrr en eftir sólsetur.
◼ Allir, þar með talinn ræðumaðurinn, ættu að fá nákvæmar upplýsingar um stund og stað hátíðarinnar.
◼ Útvega skyldi rétta tegund brauðs og víns og hafa til reiðu. — Sjá Varðturninn, 1. febrúar 1985, bls. 17.
◼ Diska, glös, viðeigandi borð og borðdúk ætti að koma með til salarins og setja fyrirfram á sinn stað.
◼ Ríkissalinn eða annan samkomustað ætti að hreinsa rækilega fyrir hátíðina.
◼ Velja ætti bræður til að hafa umsjón í sal og til að bera fram brauðið og vínið, og leiðbeina þeim fyrirfram um skyldustörf sín og hvernig þau skuli innt af hendi.
◼ Gera ætti ráðstafanir til að brauðið og vínið verði borið fram fyrir smurða bræður og systur sem ekki geta verið viðstödd vegna veikinda.
◼ Þegar ráðgert er að halda fleiri en eina minningarhátíð í sama ríkissal ætti að vera góð samvinna á milli safnaða svo forðast megi óþarfa örtröð í anddyri, á gangstéttum utandyra og á bílastæðum.