Fagnaðarerindið á internetinu
Á þessari tækniöld leita sumir eftir upplýsingum hjá rafrænum upplýsingaveitum, og er internetið eitt þeirra. Félagið hefur þess vegna sett inn á internetið nokkrar nákvæmar upplýsingar um trú og starfsemi votta Jehóva.
Vefsetur okkar á internetinu hefur veffangið http://www.watchtower.org og inniheldur úrval smárita, bæklinga og greina úr Varðturninum og Vaknið! á ensku, kínversku (einfaldaðri), rússnesku, spænsku og þýsku, svo og á öðrum tungumálum. Ritin á þessari vefsíðu eru þegar fáanleg hjá söfnuðunum og eru í notkun í boðunarstarfinu. Tilgangurinn með vefsetrinu er ekki sá að gefa þar út ný rit heldur að gefa almenningi kost á upplýsingum í rafrænum búningi. Það er engin þörf á því að nokkur einstaklingur útbúi vefsíður á internetinu um votta Jehóva, starfsemi eða trúarskoðanir okkar. Á hinu opinbera vefsetri okkar eru settar fram nákvæmar upplýsingar fyrir hvern sem vill fá þær.
Þó að vefsetur okkar birti engin netföng (fyrir tölvupóst) er þar að finna skrá yfir póstföng deildaskrifstofa okkar út um allan heim. Fólk getur því skrifað eftir frekari upplýsingum eða til að fá persónulega aðstoð frá vottum í sínu byggðarlagi. Ykkur er velkomið að gefa ofangreint veffang hverjum þeim sem kynni að hafa löngun til fræðast um biblíuleg sannindi eftir þessari leið fyrst í stað.