Guðveldisfréttir
◼ Albanía: Í janúar náðist nýtt boðberahámark, 1556 boðberar, sem er 20% aukning miðað við meðaltal síðasta árs.
◼ Bandaríkin: Félagið kom á fót hjálparnefndum vegna óveðurstjóns í suðurhluta Bandaríkjanna, meðal annars af völdum flóða í Texas og fellibylsins Georges á Florida Keys-eyjaklasanum. Það vakti aðdáun nágranna hvernig Félagið aðstoðaði bræðurna og hvernig hjálparstarfið fór fram.
◼ Kanada: Fjögur hundruð og sextíu nýir reglulegir brautryðjendur voru útnefndir 1. janúar 1999.
◼ Palá: Í desember voru 73 boðberar starfandi á eynni sem er 20% aukning miðað við meðaltal síðasta árs og 22% fleiri boðberar en í desember fyrir ári.