Þjónustusamkomur
Vikan sem hefst 11. desember
Söngur 50
10 mín: Staðbundnar tilkynningar og valdar tilkynningar úr Ríkisþjónustu okkar. Bendið á hvernig nota megi bókina Mesta mikilmenni og Biblíusögubókina með góðum árangri yfir jólahátíðina. Hvetjið alla til að horfa á myndbandið The Bible — Accurate History, Reliable Prophecy (Biblían — nákvæm saga, áreiðanleg spádómsbók) áður en rætt verður um efni þess á þjónustusamkomunni í vikunni sem hefst 25. desember. Þeir sem eiga myndbandið gætu leyft öðrum að horfa á það eða horft á það með þeim.
15 mín: „Óttastu Jehóva allan liðlangan daginn.“* Takið með skilgreininguna á guðsótta í Vaknið! á ensku 8. janúar 1998, bls. 26. Leggið áherslu á kosti þess að búa yfir heilnæmum guðsótta.
20 mín: „Hópþrýstingur og sérréttindin að prédika.“ Ræða og viðtöl. Hvetjið þá sem hafa orðið fyrir þrýstingi jafnaldra til að segja frá því hvernig þeir gátu haldið áfram að taka virkan þátt í boðunarstarfinu þrátt fyrir hópþrýstinginn.
Söngur 78 og lokabæn.
Vikan sem hefst 18. desember
Söngur 94
15 mín: Staðbundnar tilkynningar og reikningshaldsskýrslan. Greinið frá ráðstöfunum safnaðarins fyrir boðunarstarfið yfir helgidagana. Svarið spurningunni: Er nokkuð athugavert við að taka þátt í hátíðahöldum, sem kunna að vera af heiðnum uppruna, ef það er ekki gert af trúarlegum ástæðum? — Sjá Reasoning from the Scriptures (Rökræðubókina), bls. 178-80.
12 mín: „Guðveldisskólinn árið 2001.“ Ræða skólahirðis. Hvetjið alla til að fylgja hinni vikulegu biblíulestraráætlun og gera verkefnum sínum góð skil.
18 mín: „Prédikar þú með djörfung?“* Fáið áheyrendur til að tjá sig um ritningarstaðina í greininni. Sýnið fram á með hjálp Organized To Accomplish Our Ministry (Þjónustubókarinnar), bls. 86, hvernig við getum byggt upp meiri djörfung og náð betri árangri í boðunarstarfinu.
Söngur 124 og lokabæn.
Vikan sem hefst 25. desember
Söngur 126
10 mín: Staðbundnar tilkynningar. Biðjið áheyrendur að segja nýlegar frásagnir úr boðunarstarfinu. Rifjið upp ritatilboðið í janúar.
10 mín: Staðbundnar þarfir.
25 mín: „Lærðu um sögu og spádóma Biblíunnar.“ Umræður við áheyrendur. Komið með tillögur um hvernig nota megi myndbandið til að örva áhuga fólks. (Árbókin 1999, bls. 51-2) Í febrúar verður annað myndbandið í syrpunni tekið fyrir en það heitir The Bible — Mankind’s Oldest Modern Book (Biblían — elsta nútímabók mannkyns).
Söngur 151 og lokabæn.
Vikan sem hefst 1. janúar
Söngur 171
8 mín: Staðbundnar tilkynningar. Ef söfnuðurinn breytir um samkomutíma um áramótin skulið þið hvetja alla til að sækja samkomurnar reglulega á nýja tímanum, láta biblíunemendur og áhugasama vita af breytingunum og byrja að nota boðsmiða með nýja samkomutímann. Farið nokkrum orðum um þjónustuskýrsluna fyrir ágúst, bæði fyrir landið í heild og söfnuðinn. Minnið alla á að skila inn starfsskýrslum fyrir desember.
17 mín: Búðu þig undir að fara í endurheimsóknir. Faðir ræðir við fjölskyldu sína um leiðir til að verða skilvirkari í þjónustunni. Hann bendir á biblíulegar ástæður fyrir því að fylgja öllum áhuga eftir. Fjölskyldan notar leiðbeiningarnar í Varðturninum 1. ágúst 1999, bls. 22, gr. 18, til að búa sig undir að fara í nokkrar endurheimsóknir. Allir í fjölskyldunni viðurkenna að þeir hafi hitt fólk sem ætti að heimsækja aftur. Hver á fætur öðrum lýsa þau fyrsta samtalinu við húsráðandann meðan hinir stinga upp á umræðuefni og ritningarstað til að nota í endurheimsókninni. Þeir finna ýmislegt í Kröfubæklingnum sem má nota með góðum árangri. Foreldrarnir fá eitt barnanna til að æfa hvað það ætlar að segja í endurheimsókninni og gera síðan ákveðnar ráðstafanir til að fara í endurheimsóknir í vikunni.
20 min: „Þiggja vottar Jehóva einhver lyf sem unnin eru úr blóði?“ Ræða öldungs byggð á „Spurningum frá lesendum“ í Varðturninum 1. júlí 2000, bls.29-31. Takið með efni úr Varðturninum 1. febrúar 1994, bls. 30-1. Dragið saman aðalatriðin í lokin.
Söngur 212 og lokabæn.
* Hafið inngangsorðin skemmri en eina mínútu og farið yfir greinina með spurningum og svörum.