Hvað geturðu sagt um blöðin?
Varðturninn 1. desember
„Milljónir manna eru heillaðar af þeim atburðum sem tengjast fæðingu Jesú en sumum finnst erfitt að trúa frásögunni af fæðingu hans. Jesús sagðist hafa komið í heiminn til að gefa líf sitt sem lausnargjald svo að menn gætu orðið fullkomnir og hlotið og eilíft líf. (Lestu Markús 10:45) Í þessu blaði er bent á hvers vegna hann kom í heiminn og fæddist með þeim hætti sem Biblían segir frá.“
Vaknið! otkóber-desember
„Margir halda að trú og vísindi eigi í stríði. Sumir telja jafnvel að það sé óhugsandi að vísindalega þenkjandi maður trúi á Guð. Hvað heldur þú? [Gefðu kost á svari.] Nýjasta tölublað Vaknið! fjallar um athyglisverða hlið á þessu máli.“
Kynning á Kröfubæklingnum
„Í þessum bæklingi er námsefni sem nær yfir grundvallarkenningar Biblíunnar. Á hverri blaðsíðu má finna svör við spurningum sem hafa valdið mönnum hugarangri öldum saman. Eitt dæmi er spurningin: Hver er tilgangur Guðs með jörðina?“ Flettu upp á 5. kafla og lestu spurningarnar í upphafi kaflans. Spyrðu húsráðandann hver þeirra honum finnist áhugaverðust og lestu því næst tilheyrandi tölugrein(ar) og flettu upp viðeigandi ritningarstöðum. Útskýrðu að jafnauðvelt sé að finna fullnægjandi svör við hinum spurningunum. Leggðu til að þú komir aftur til að ræða aðra spurningu.